Leikið verður í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og umferðinni lýkur svo á morgun. Tónlistarmaðurinn og Þróttarinn Jón Ólafsson er spámaður vikunnar hjá okkur á Fótbolta.net.
„Maður er fótboltafréttafíkill en í dag fylgist maður miklu betur með boltanum hérna heima en þeim erlenda," segir Jón.
„Maður er fótboltafréttafíkill en í dag fylgist maður miklu betur með boltanum hérna heima en þeim erlenda," segir Jón.
Hann á góðan möguleika á að skáka Atla Eðvaldssyni sem var síðasti spámaður en náði aðeins þremur táknum réttum.
Swansea 2 - 1 Chelsea (í kvöld 19:45)
Hörkuleikur sem heimamenn vinna. Gylfi skorar beint úr aukaspyrnu.
Tottenham 0 - 1 Wigan (í kvöld 19:45)
Í þessum leik mun sannast hið fornkveðna að allt getur gerst í knattspyrnu.
Wolverhampton 1 - 1 Liverpool (í kvöld 19:45)
2 rauð og 4 gul í þessum hörkuleik sem endar með jafntefli.
Everton 1 - 3 Man City (í kvöld 20:00)
Armani-drengirnir vinna öruggan sigur.
Man Utd 0 - 0 Stoke (í kvöld 20:00)
Steindautt jafntefli.
Aston Villa 0 - 1 QPR (á morgun 19:45)
Heiðar með markið úr vítaspyrnu.
Blackburn 2 - 2 Newcastle (á morgun 20:00)
Alan Shearer tekur fram skóna að nýju og jafnar fyrir Geordies á síðustu mínútu.
Bolton 1 - 0 Arsenal (á morgun 20:00)
Bolton tekur þetta á hörkunni og Wenger vælir í fjölmiðlum eftir leik.
Fulham 2 - 0 West Brom (á morgun 20:00)
Stuð á Fulham í þessum leik og þeir fara létt með þá röndóttu.
Sunderland - Norwich (á morgun 20:00) frestað
Þessum leik verður frestað þar til um páskana.
Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Willum Þór Þórsson (7 réttir)
Kári Kristján Kristjánsson (6 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Hörður Magnússon (5 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)
Atli Eðvaldsson (3 réttir)
Kristján Guðmundsson (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Friðrik Dór Jónsson (3 réttir)
Sigurbjörn Hreiðarsson (1 réttur)
Bjarni Jóhannsson (1 réttur)
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |


