Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 03. febrúar 2012 12:00
Elvar Geir Magnússon
Henry Birgir spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Jón Ólafs með núll rétta í vikunni
Mynd: Twitter
Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamaður á Vísi og Fréttablaðinu, er spámaður næstu umferðar í enska boltanum. Hann spáir hér í leiki helgarinnar á sinn einstaka hátt.

Hann getur allavega ekki fengið færri rétta en síðasti spámaður, Jón Ólafsson tónlistarmaður náði á ótrúlegan hátt að hafa engan réttan í síðustu umferð!

Svona er spáin hjá Henry:



Arsenal 2 - 0 Blackburn (á morgun kl. 13)
Blackburn virðist ekki geta keypt sigur fyrir allan kjúkling í heiminum. Nallararnir rífa sig upp af þessu fræga og Wenger brosir líklega út í annað. Gamli Fókus-kóngurinn Hjöbbi segir að stuðullinn á brosið sé 3,25.

Norwich 0 - 0 Bolton (á morgun kl. 15)
Zvefn alert...zzzzz. Hverjum er ekki sama hvernig þessi leikur fer? Hnúfubakur.

QPR 3 - 1 Wolves (á morgun kl. 15)
Nýju strikerarnir skila inn mörkum á meðan Helguson er í sjúkranuddinu. Sparky hringir í Gary Bailey eftir leik.

Stoke 1 - 2 Sunderland (á morgun kl. 15)
Töframaðurinn O'Neill dregur enn einn sigurinn úr rassvasanum. Toppmaður. Ætla samt ekki að horfa á þessa keppni um hvort liðið getur skorað lengra "field goal". Áhugaverðast við leikinn er sú staðreynd að stórleikarinn Danny Glover verður á vellinum.

West Brom 1 -1 Swansea (á morgun kl. 15)
Þar sem ALLIR spá því að Íslendingarnir í deildinni skori í hverjum leik verð ég frumlegur, bola mig í gang og spái því að Gylfi setji eitt úr auka. Mun því meður ekki duga til.

Wigan 0 - 2 Everton (á morgun kl. 15)
Lið með helstrípaðan Phil Neville, son Neville Neville sem er ekkert skyldur söngvaranum Aaron Neville, getur ekki tapað gegn Wigan.

Man City 4 - 0 Fulham (á morgun kl. 17:30)
City-vélin mallar þetta auðveldlega. Partý hjá Mario í kjölfarið. Sögusagnir um að Sol Campbell mæti í pelsinum. Sammi sopi hefur staðfest mætingu.

Newcastle 3 - 3 Aston Villa (sunnudag kl. 13:30)
Siggi Hall segir markaveisla. Dúfur.

Chelsea 1 - 1 Man Utd (sunnudag kl. 16)
Stórleikur sem mun ekki standa undir væntingum. Svona 80 mín af leiðindum og 10 mín af fjöri.

Liverpool 0 - 2 Tottenham (mánudag kl. 20)
Liverpool gengur bara vel gegn stóru liðunum þannig að þetta verður easy victory fyrir Boga Ágústsson, Seth og hina tvo sem halda með Spurs.

Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Willum Þór Þórsson (7 réttir)
Kári Kristján Kristjánsson (6 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Hörður Magnússon (5 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)
Atli Eðvaldsson (3 réttir)
Kristján Guðmundsson (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Friðrik Dór Jónsson (3 réttir)
Sigurbjörn Hreiðarsson (1 réttur)
Bjarni Jóhannsson (1 réttur)
Jón Ólafsson (0 réttir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner
banner