Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
   mán 06. febrúar 2012 18:00
Magnús Már Einarsson
Ole Gunnar Solskjær: Ekki svo heimskur að stefna á það
Ole Gunnar Solskjær, fyrrum framherji Manchester United, hefur vakið athygli fyrir góða byrjun á þjálfaraferli sínum. Þessi 39 ára gamli Norðmaður stýrði varaliði Manchester United frá 2008-2011 áður en hann gerði Molde að norskum meisturum í fyrra.

Solskjær segist ekki vera farinn að horfa til þess að gerast knattspyrnustjóri á Englandi þrátt fyrir að hafa verið orðaður við störf þar.

,,Ekki í augnablikinu. Ég er nýkominn heim eftir mörg ár þar (í Englandi)," sagði Solskjær í viðtali við Fótbolta.net.

Solskjær hefur meðal annars verið nefndur til sögunnar sem arftaki Sir Alex Ferguson í framtíðinni en hann segist sjálfur ekki hugsa um það.

,,Ég er ekki nógu heimskur eða barnalegur til að halda að segja að ég geti það. Það er draumur allra, þegar ég verði fimmtugur kannski, maður veit aldrei ef það kemur upp," sagði Solskjær sem segir markmið sitt ekki vera að taka við United í framtíðinni.

,,Það er ekki markmið mitt, ég er ekki svo heimskur að segja það. Það er draumur en það er ekki raunhæft markmið. Það eru svo margir góðir stjórar í boltanum og þetta er svo stórt félag að það er ekki hægt að hafa þetta sem markmið, þú verður fyrir vonbrigðum þá."

Í viðtalinu hér að ofan er Solskjær einnig spurður út í íslensku leikmennina í norsku deildinni.

,,Þeir eru frábærir strákar, með gott hugarfar, þeir eru líkamlega sterkir og ég hef einungis góða hluti um þá að segja," sagði Solskjær meðal annars.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner