Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   fim 23. febrúar 2012 22:36
Hafliði Breiðfjörð
Faxaflóamót kvenna: Breiðablik vann Aftureldingu
Kvenaboltinn
Þórdís Hrönn skoraði fyrir Breiðablik í kvöld.
Þórdís Hrönn skoraði fyrir Breiðablik í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding 0-3 Breiðablik
0-1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
0-2 Ástrós Eva Gunnarsdóttir
0-3 Fanndís Friðriksdóttir

Breiðablik fór í annað sætið í Faxaflóamóti kvenna í kvöld með 3-0 sigri á Aftureldingu á Varmárvelli.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir kom Blikum yfir og þær Ástrós Eva Gunnarsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir bættu mörkum við.

Breiðablik fór með sigrinum í annað sæti mótsins með sex stig úr þremur leikjum en Stjarnan hefur þegar unnið mótið með fullt hús stiga, 12 stig úr fjórum leikjum.

FH er í þriðja sæti með sex stig en lakara markahlutfall en Blikar og hefur leikið alla sína leiki. ÍBV er í þriðja sætinu með 3 stig úr þremur leikjum og Afturelding á botninum án stiga.

Breiðablik og ÍBV mætast í síðasta leiknum í mótinu 10. mars.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner