Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   sun 11. mars 2012 20:47
Elvar Geir Magnússon
Miðvörður frá Slóveníu til Keflavíkur á reynslu
Keflvíkingar munu fá miðvörð til reynslu á morgun en um er að ræða slóvenskan leikmann. Þetta sagði Zoran Daníel Ljubicic, þjálfari Keflavíkur, við Fótbolta.net í dag.

Leikmaðurinn mun æfa með liðinu í viku.

Hann hefur leikið í úrvalsdeildinni í Bosníu og Slóveníu.

Keflavík hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum í Lengjubikarnum en í dag vann liðið stórsigur á Tindastóli.
Athugasemdir
banner
banner