mán 23. apríl 2012 20:00
Magnús Már Einarsson
Sene Abdalha í Hamar (Staðfest)
Mynd: Valdimar Hafsteinsson
Hamar úr Hveragerði hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í 2. deild karla en framherjinn Sene Abdalha er kominn til félagsins.

Sene kemur frá Selfyssingum en hann spilaði tvo leiki í 1. deildinni í fyrra auk þess að spila með öðrum flokki.

Sene er fæddur árið 1993 en hann kemur frá Senegal.

Keppni í 2. deild karla hefst 11. maí en Hamarsmenn mæta Gróttu í fyrstu umferðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner