Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   þri 01. maí 2012 06:30
Fótbolti.net
Spá þjálfara og fyrirliða í 2.deild karla: 12. sæti
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonardóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonardóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonardóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonardóttir
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í tólta og neðsta sæti í þessari spá var KFR sem fékk 24 stig af 242 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um KFR.

Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. KFR 24 stig

12. KFR
Heimasíða: kfrang.is
Lokastaða í fyrra: 2. sæti í 3.deild

KFR mun í sumar leika í annarri deild í fyrsta skipti í sögunni. Eftir nokkurra ára hlé sendi KFR lið í þriðju deildina á nýjan leik árið 2007. Sumarið 2010 fékk liðið einungis sjö stig í deildinni en í fyrra fór mikið ævintýri af stað hjá Rangæingum. Gamli varnarjaxlinn Ómar Valdimarsson tók við liðinu og gerði mjög góða hluti. KFR tryggði sér sæti í úrslitakeppninni í síðustu umferð og þar lét liðið síðan kné fylgja kviði. KFR sló Berserki út í 8-liða úrslitunum og liðið hafði betur gegn KB í spennandi viðureign í undanúrslitunum.

Í ár bíður mun erfiðara verkefni fyrir KFR og spennandi verður að sjá hvernig liðið plummar sig deild ofar. Í fyrra bar Reynir Björgvinsson upp sóknarleik Rangæinga en hann skoraði fjórtán mörk og lagði upp mörg til viðbótar. Í vetur hefur Reynir lítið sem ekkert verið með KFR vegna meiðsla og þar munar um minna. Óvíst er hvenær Reynir verður klár í slaginn en afar mikilvægt er fyrir KFR að hann nái sér sem fyrst og verði með í sumar.

KFR hefur ekki misst neina leikmenn frá því síðastliðið sumar en þó er ólíklegt að mðjumaðurinn reyndi Boban Jovic verði áfram með liðinu. Pólski markvörðurinn Maciej Majweski vakti athygli fyrir góða frammistöðu í fyrra sem og landi hans Andrezej Jakimczvk. Þeir munu báðir leika áfram með KFR í sumar auk þess sem félagið hefur fengið Mariusz Baranolski en hann getur leikið bæði á miðjunni og kantinum.

KFR hefur einnig fengið Árna Pál Hafþórsson, Arnar Frey Óskarsson og Reyni Óskarsson í sínar raðir en þessir leikmenn eru uppaldir hjá Selfyssingum og hafa leikið með Árborg undanfarin ár. Ekki er útilokað að KFR muni fá meiri liðsstyrk fyrir mót en leikmannahópurinn er þunnur og ekki veitir af liðsstyrk fyrir baráttuna í sumar.

Í Lengjubikarnum tapaði KFR þremur leikjum auk þess sem liðið sigraði Hamar og gerði jafntefli við KB en liðinu var síðar dæmdur sigur í þeim leik. Liðið átti ágætis spretti heilt yfir í Lengjubikarnum en betur má ef duga skal í annarri deildinni í sumar. Ljóst er að sumarið á eftir að reyna mikið á Rangæinga en ef þeir ná upp góðri stemningu gætu þeir náð að halda sæti sínu í deildinni. Verkefnið verður hins vegar afar erfitt og miðað við spána virðast fáir hafa trú á því að liðið muni leika aftur í annarri deildinni sumarið 2013.

Styrkleikar:
Leikmennirnir þekkja hvern annan vel enda hafa þeir spilað lengi saman. Liðið er byggt upp á heimamönnum og ef stemmningin í sýslunni verður góð í kringum leiki ættu þeir að geta náð í punkta á heimavelli. Ómar Valdimarsson er klókur þjálfari, þekkir vel styrkleika og veikleika síns liðs og spilar skynsamlega úr því.

Veikleikar:
Stærstur hluti liðsins þekkir ekki annað en að spila í 3. deildinni og stökkið upp í 2. deild gæti verið of stórt fyrir þá. Mótið er langt og strangt og liðið þyrfti að vera með breiðari hóp ef ekki á að fara illa. Reynir bar sóknarleik KFR upp í fyrra og ef hann er ekki með vegna meiðsla er erfitt að sjá hver á að taka við keflinu.

Lykilmenn: Reynir Björgvinsson, Helgi Ármannsson og Maciej Majweski.


Þjálfarinn: Ómar Valdimarsson:
,,Þessi spá er eins og maður reiknaði með, auðvitað verður á brattann að sækja fyrir okkur. Liðin sem við erum að fara að mæta eru sterkari en liðin sem við mættum í fyrra. Við höfum ekki mikið bolmagn, það er ekkert grín að fá leikmenn sem eru til í að keyra alla þessa vegalengd. Við höfum ekki alveg náð að æfa eins vel og ég vildi, menn hafa verið á sitthvorum staðnum og þetta verið púsluspil."

Komnir:
Arnar Freyr Óskarsson frá Árborg
Árni Páll Hafþórsson frá Selfossi
Mariusz Baranolski frá Póllandi
Reynir Óskarsson frá Selfossi

Farnir:
Enginn



Þrír fyrstu leikir KFR:
12. maí: KV (Ú)
19.maí: Grótta (Ú)
25.maí: Fjarðabyggð (H)
Slapp
banner
banner