Keppni í Pepsi-deild karla hefst í dag með fimm leikjum. Hörður Magnússon, umsjónarmaður Pepsi-markanna á Stöð 2 Sport, spáði í leiki fyrstu umferðar fyrir Fótbolta.net.
,,Það er gríðarleg eftirvænting alltaf fyrir fyrstu umferð. Sem gamall leikmaður þá var alltaf rosalega skemmtilegt að fara að spila fyrsta leik. Fótboltinn verður samt stundum ekki jafngóður þegar menn eru yfirspenntir," sagði Hörður.
,,Ég býst við rosalega skemmtilegu Íslandsmóti. Ég held að ekkert lið komi til með að stinga af og ég held að þetta verði jafnara en menn halda. Ég sé ekki að KR og FH berjist tvö um þetta, ég held að 3-4 lið geti blandað sér í þetta."
Selfoss 2 - 2 ÍBV
Það verður jafntefli hjá Suðurlandsliðunum. Það er alltaf erfitt að spila á móti nýliðunum í fyrsta leik, sérstaklega þegar þeir eru á heimavelli en ÍBV nær stigi.
Breiðablik 1 - 1 ÍA
Maður lítur eiginlega ekkert á Skagamenn sem nýliða. Þetta verður mjög erfiður leikur fyrir Blika en ég held að það verði jafntefli þarna líka.
KR 2 - 1 Stjarnan
Þetta er mest spennandi leikurinn í umferðinni. KR-ingarnir byrja ofast ekkert alltof vel. Þeir byrjuðu reyndar vel í fyrra en þeir hafa stundum strögglað á heimavelli í fyrstu leikjunum. Samt sem áður spái ég því KR taki þetta 2-1.
Fylkir 1 - 2 Keflavík
Báðum þessum liðum er spáð fallbaráttu og ef Fylkismenn ætla að halda sér í deildinni verða þeir að vinna svona leiki. Ég held samt að Keflavík taki þetta 2-1.
FH 1 - 1 Grindavík
Gaui Þórðar mætir í Krikann með mikla varnartaktík og ég hugsa að hann nái í stig.
Fram 2 - 0 Vaur
Framararnir hafa litið mjög vel út og held að þeir vinni Val. Steven Lennon skorar bæði mörkin ef hann spilar, hann skorar 10-15 mörk í sumar.




