Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   lau 05. maí 2012 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kagawa: Ég er á leið til Manchester United
Mynd: Getty Images
Shinji Kagawa, japanskur miðjumaður Borussia Dortmund, segir að hann sé að fara til Manchester United í sumar en hann er nú búinn að vinna þýsku efstu deildina tvö tímabil í röð sem leikmaður Dortmund.

Kagawa hefur verið einn af burðarstólpum Dortmund liðsins síðustu tímabil og er talinn vera einn besti miðjumaður í heimi en hann er aðeins 23 ára gamall.

,,Tólfta maí spila ég síðasta leik minn fyrir Dortmund og þá mun nýr kafli hefjast í lífi mínu sem leikmaður Manchester United," sagði Kagawa við TV Osaka.

Man Utd hefur ekki tjáð sig um málið en Kagawa hefur þó lengi verið orðaður við ensku risana.

Kagawa hefur skorað 28 mörk í 69 leikjum fyrir Dortmund, spilandi á miðjunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner