Danska liðið Esbjerg komst í dag upp í dönsku úrvalsdeildina, en liðið hafði talsverða yfirburði í deildinni.
Arnór Smárason spilar með Esbjerg, en liðið vann í dag Vejle Boldklub Kolding með einu marki gegn einu.
Þetta þýðir að Esbjerg er á toppnum með 53 stig þegar sex umferðir eru eftir, en Randers FC kemur næst á eftir með 37 stig í öðru sætinu. Esbjerg því með talsverða yfirburði í deildinni.
Hann hefur leikið 17 leiki á tímabilinu og skorað fimm mörk, en nú er ljóst að hann kemur til með að spila í dönsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Hann er þá mikilvægur partur af íslenska landsliðinu, sem er nú undir stjórn Lars Lagerback.
Athugasemdir