Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 10. maí 2012 12:00
Magnús Már Einarsson
Bjarki Már Elísson spáir í leiki 2. umferðar
Bjarki Már Elísson.
Bjarki Már Elísson.
Mynd: Sport.is
Önnur umferðin í Pepsi-deild karla fer fram í kvöld. Bjarki Már Elísson, handboltamaður í HK, fær það hlutverk að spá í leiki umferðarinnar að þessu sinni en hann varð Íslandsmeistari með sínu liði á dögunum.

,,Ég fylgist aðallega með deildinni í gegnum fjölmiðla en ég fer á heimaleiki Fylkis, þeir eru mitt lið," sagði Bjarki Már við Fótbolta.net en hann er ekki of bjartsýnn á gott gengi Árbæjarliðsins í sumar.

,,Ég er ekkert alltof bjartsýnn en ef David Elebert hrekkur í gang gætum við verið í miðjumoðinu, annars gæti þetta orðið erfitt sumar. Hann er einn af þessum Írum af gamla skólanum og það er gaman að honum."


ÍBV 1 - 2 Breiðablik (18:00)
Óli Kristjáns er minn maður og ég held að Blikar fari með sigur af hólmi eftir erfiðan leik í fyrstu umferð.

Valur 1 - 1 Selfoss (19:15)
Þessi leikur fer 1-1 en ef að Andri Fannar byrjar inn á gætu Valsarar stolið sigrinum.

Grindavík 3 - 0 Keflavík (19:15)
Pape Mamadou Faye skorar tvö og Tomi Ameobi eitt. Keflvíkingar voru heppnir að ná stigi í Árbænum síðast og þeir fá skellinn núna.

FH 2 - 2 Fram (19:15)
Fólk á að fara á þennan leik, hann verður opinn og skemmtilegur. Björn Daníel skorar tvö fyrir FH og Steven Lennon tvö fyrir Fram.

Stjarnan 0 - 1 Fylkir
Þetta var 1-0 fyrir mínum mönnum úr Árbænum. David Elebert skorar eina markið með skalla eftir fast leikatriði.

ÍA 2 - 0 KR (20:00)
Skagamenn vinna þennan leik 2-0. Aldamótabakvörðurinn Guðmundur Böðvar Guðjónsson skorar eitt eða leggur upp. Það eru of miklar væntingar í Vesturbænum og KR-ingarnir eru að fá það í bakið.

Fyrri spámenn:
Hörður Magnússon (1 réttur)
Slapp
banner
banner