Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   mán 14. maí 2012 12:30
Magnús Már Einarsson
Páll Viðar Gíslason spáir í leiki 3. umferðar
Páll Viðar Gíslason.
Páll Viðar Gíslason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þriðja umferðin í Pepsi-deild karla hefst í kvöld en þá eru þrír leikir á dagskrá. Páll Viðar Gíslason, þjálfair Þórs, tippar á leiki umferðarinnar að þessu sinni.

Páll mun reyna að bæta árangur Harðar Magnússonar og Bjarka Más Elíssonar sem hafa einungis verið með einn réttan í fyrstu tveimur umferðunum.

Keflavík 1 - 1 Stjarnan (19:15 í kvöld)
Laudrup kemur skemmtilega á óvart og setur jöfnunarmark Stjörnunnar í Keflavík.

Selfoss 0 - 2 FH (19:15 á morgun)
Þetta verður sannfærandi 2-0 sigur hjá FH, þetta er flott spilandi lið.

Breiðablik 1 - 0 Valur (19:15 á morgun)
Þetta fer 1-0 fyrir Breiðabliki þar sem stormbakvörðurinn Gísli Páll Helgason skorar með föstu skoti í stöng og inn.

Fram 0 - 0 Grindavík (19:15 á morgun)
Markalaust jafntefli í mjög opnum og skemmtilegum leik.

Fylkir 2 - 0 ÍA (19:15 á morgun)
Skagamenn verða slegnir niður jörðina í Árbænum. Jóhann Þórhallsson skorar bæði mörk Fylkis.

KR 2 - 1 ÍBV (20:00 á morgun)
KR tapar ekki mikið fleiri stigum í Frostaskjólinu, þeir setja leynivopnið Atla Sigurjóns inn á og þá er þetta klárt.

Fyrri spámenn:
Hörður Magnússon (1 réttur)
Bjarki Már Elísson (1 réttur)
Slapp
banner
banner
banner