Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   mið 16. maí 2012 09:00
Magnús Már Einarsson
Grétar Rafn: Nenni ekki að fara í eitthvað rugl og vera óánægður
Grétar Rafn Steinsson, hægri bakvörður íslenska landsliðsins, mun yfirgefa Bolton þegar samningur hans rennur út í sumar. Grétar ætlar að vanda valið á nýju félagi og ekki er víst að hann geri nýjan samning strax í sumar.

,,Hvort það gerist í sumar, um áramótin eða á næsta ári veit ég ekki. Maður þarf að sjá til hvað gerist en ef maður tekur eitthvað skref verður það að vera spennandi og krefjandi," sagði hinn þrítugi Grétar við Fótbolta.net í gær.

,,Margir leikmenn bíða í sex mánuði eða bíða í ár en sumir finna eitthvað við sitt hæfi strax í byrjun. Ég fer í þetta með opnum hug, ég slaka á í nokkrar vikur og sé síðan hvað verður."

,,Maður er það gamall að maður vill að allt smelli saman. Ég nenni ekki að fara í eitthvað rugl og vera óánægður. Ég ætla að fara eitthvert þar sem ég veit að ég mun njóta þess að spila fótbolta. Þangað til að ég sé það tækifæri fyrir framan mig mun ég slaka á og leyfa fólkinu í kringum mig að sjá um þessa hluti. Ef eitthvað gerist þá hoppa ég á það."


Grétar Rafn kom til Bolton frá AZ Alkmaar í janúar 2008 og hann segist vera bæði opinn fyrir því að vera áfram á Englandi eða róa á önnur mið.

,,Ég er opinn fyrir öllu. Það er gott að búa á Englandi og það er nett kæruleysi yfir öllu og það eru bæði kostir og gallar við það. Það er lítil sem engin þjálfun og þetta er bara harka áfram. Það væri virkilega gaman að fara aftur í meira evrópskt þar sem eru meiri reglur og taktík og það væri áhugavert að fara aftur í Evrópukeppni."

Grétar Rafn féll með liði Bolton á þessu tímabili en hann vill ekki tjá sig um hvernig æfingarnar eru hjá félaginu.

,,Ég ætla ekkert að tjá mig um það núna en ég væri mikið til í að fara þar sem er þjálfun, taktík og skipulag til að njóta þess að spila aftur fótbolta og gera það sem ég er góður í að gera. Síðustu tvö ár hafa ekki verið alveg eins og ég hefði kosið. Það er leitt fyrir klúbbinn að þetta fór svona. Fótboltinn er skrýtinn en það eru alltaf spennandi tímar framundan, maður lendir alltaf á fótunum," sagði Grétar að lokum.
Slapp
banner
banner
banner