Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 16. maí 2012 09:49
Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmarkvörður frá Skotlandi í kvennalið ÍBV
Kvenaboltinn
Mynd: Eyjafréttir
Kvennalið ÍBV náði að styrkja sig með einum leikmanni áður en félagaskiptaglugginn hér á landi lokaði í gærkvöldi.

Félagið fékk þá félagaskipti fyrir skoska markvörðinn Khym Ramsay sem kemur Rangers í heimalandi sínu en hún hefur verið viðloðandi landslið þeirra Skota.

Hjá ÍBV mun hún berjast við Bryndísi Láru Hrafnelsdóttur um byrjunarliðsætið í markinu en hún kom til félgsins frá ÍBV í vetur. Birna Berg sem varði mark liðsins í fyrrasumar er frá út allt árið vegna meiðsla.

Ramsay er fimmti leikmaðurinn sem ÍBV fær í vetur. Auk Bryndísar eru það þær Andrea Ýr Gústavsdóttir frá Breiðabliki, Anna Þórunn Guðmundsdóttir frá Grindavík og Shaneka Gordon frá Grindavík.

Liðið hefur misst Birnu Berg, Þórhildi Ólafsdóttur til Þór/KA, Eddu Maríu Birgisdóttur í Stjörnuna, Kolbrúnu Ingu Stefánsdóttur sem er hætt og Melissa Cary.
Slapp
banner
banner