fim 17. maí 2012 15:00
Gunnar Örn Runólfsson
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Tiki Taka - Leikkerfið sem stýrir leiknum
Gunnar Örn Runólfsson
Gunnar Örn Runólfsson
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Guardian
„Leikkerfið þar sem miðjumenn eru í öllum stöðum.“

„Leikmenn eru þreyttari í hausnum en öðrum stöðum líkamans eftir æfingar, þeir þurfa að hugsa mjög mikið með og án bolta.“

„Leikmenn hvíla sig í sókninni því liðið er með boltann yfir 50% allan leikinn.“

Þannig hljómar einkenni tiki-taka leikkerfisins, sem heims- og Evrópumeistarar Barcelona hafa unnið sér til frægðar fyrir að spila undir leiðsögn fráfarandi stjóra þeirra Pep Guardiola. Spilamennskan hefur einnig einkenni „Total football“ en leggur meiri áherslu á færslu á boltanum milli miðjumanna heldur en að miðjumenn séu að breyta sífellt um stöður, hefur náð sífellt meiri útbreiðslu eftir að spænska landsliðið og Katalóníustórveldið sýndu og sönnuðu að þetta leikkerfi er vænlegt til árangurs.

Spánverjar eru núverandi heims- og Evrópumeistarar og Börsungar hafa unnið 13 titla síðan Guardiola tók við liðinu.

Tiki-taka dregur upphaf sitt frá Total Football sem hollenska félagið Ajax var frægt fyrir að nota á áttunda áratug síðustu aldar. Johan Cruyff byggði upp aðferðina á stjóraferli sínum með Barcelona á árunum 1988 til 1996. Í framhaldinu tóku Louis van Gaal og Frank Rijkaard upp tiki-taka kerfið og síðan fór það að sjást hjá liðum eins og Villareal undir stjórn Manuel Pellegrini og Juan Carlos Garrido.

Þegar Pep Guardiola tók við Barcelona hafði hann starfað eitt tímabil sem stjóri varaliðs Barcelona, Barcelona B. Hann undirbjó sig eftir bestu getu fyrir stjóra starfið og var Tito Vilanova ráðinn honum til halds og trausts. Guardiola hafði fengið smjörþefinn af þjálfun á Ítalíu og m.a. notið ráðgjafar frá Juanma Lillo sem þjálfaði lið Salamanca í La Liga fyrir þrítugt.

Pep hafði hitt og rætt við þá Marcelo Bielsa, núverandi stjóra Athletic Bilbao og fyrrum þjálfara Argentínu og Chile, og César Luis Menotti fyrrum þjálfara Argentínu sem gerði þá að heimsmeisturum 1978. Guardiola dáðist að leikstíl Argentínu og Chile og ræddu þeir um leikstíl liðanna og spjallið entist langt fram eftir nóttu samkvæmt heimildarmanni.

„Við reynum að halda boltanum á vallarhelming andstæðinganna eins mikið og við mögulega getum þar sem ég verð mjög taugaóstyrkur þegar boltinn er á okkar vallarhelmingi. Við erum alls ekki nógu góðir án boltans þannig að ég vil að við náum honum aftur sem fyrst. Ég er frekar tilbúinn til að missa boltann eða brjóta á andstæðingnum á þeirra helmingi frekar en okkar,“ sagði Guardiola.

Juanma Lillo var einmitt að stýra liði Almería þegar Börsungar unnu þá sannfærandi 8-0. Lillo sagði um þann leik: „Barca er eina liðið sem verst með því að halda boltanum, liðið sem hvílir sig í sókninni.“

Þeir halda boltanum hrikalega vel og koma andstæðingunum úr stöðu. Þegar andstæðingarnir ná loks boltanum þá er eru þeir orðnir þreyttir, leikmenn komnir úr stöðum og leikmenn Barcelona eru strax byrjaðir að pressa.

Í mörgum leikjum hefur Barcelona náð að sýna meistaratakta með því að nota tiki-taka leikkerfið. Má til að mynda nefna leik Barcelona og Villarreal í fyrstu umferð spænsku deildarinnar í lok síðasta sumars. Carles Puyol og Gerard Piqué voru frá vegna meiðsla og talið var að sá missir myndi hjálpa þeim gulklæddu. Guardiola kom öllum á óvart með 3-4-3 uppstillingu með þá Eric Abidal, Sergio Busquets og Javier Mascherano aftasta. Það má með sanni segja að Villarreal hafi ekki átt séns í leiknum. Seydou Keita spilaði aftarlega á miðjunni en aðeins hann og Busquets urðu ávallt að halda stöðu meðan að Abidal og Mascherano máttu fara framar á völlinn til að halda Nilmar og Guiseppe Rossi sóknarmönnum Villarreal til baka.

Liðið nýtti sér að venju styrkleika litlu mannanna Messi, Xavi, Iniesta og Thiago Alcantara með stuttum sendingum um allan völl sem þreytti lið Villareal og skilaði heilum fimm mörkum. Þessi stórsigur kom mörgum á óvart því lið Villarreal hafði ávallt haft hendur í hári Spánarmeistaranna.

Annar leikur sem gott er að taka fyrir er hinn frægi 1-3 sigurleikur Barcelona á erkióvinunum í Real Madrid. Enn einn „stórsigurinn“ á Madridarmönnum en einnig er vert að nefna 5-0 sigurinn árið 2010 á Nou Camp og 2-6 sigurinn á Bernabeu árið áður.

Í þessum fræga El Clásico leik 10.desember 2011 var Real Madrid talið sigurstranglegra liðið af fjölmiðlum og nú ætlaði José Mourinho, þjálfari Madrídarmanna, loksins að stöðva Katalóníuvélina. Leikurinn byrjaði vel fyrir Madridinga, 1-0 eftir 30 sekúndur þegar Valdéz markvörður Barca ætlaði að senda boltann á Abidal í vörninni en boltinn fór í Mesut Özil sem kom honum á Karim Benzema og þaðan í markið. Það sást strax frá fyrstu andartökum að Barcelona ætlaði að spila boltanum út úr vörninni og þaðan upp völlinn, sama hversu pressa Real yrði þung.

En Börsungar létu þetta mark ekki á sig fá. Í stað þess að spyrna frá markinu eins og flestir aðrir markmenn myndu gera þegar Mesut Özil, Cristiano Ronaldo og Karim Benzema pressa hátt upp völlinn lét Víctor Valdéz, markvörður Barcelona, eins og ekkert hefði í skorist og hélt áfram að spila boltanum út á miðverðina þar sem að Piqué og Puyol voru komnir út á endalínu við markteiginn, tilbúnir að fá boltann í spil. Til að gera langa sögu stutta þá gekk taktíkin eins og í sögu. Stuttar sendingar upp völlinn og mikil dreifing á boltanum milli miðjumanna leiddi til þreytu leikmanna Madridinga, en margar stuttar sendingarnar með tíðu þríhyrningsspili er áberandi einkenni tiki-taka.

Framherji Börsunga Alexis Sanchez spilaði sem falska nían „false nine“, semsagt byrjaði út á kanti en fór svo fram í sóknina. Sama var uppá teningnum hjá Messi, hann lék á miðjunni, fékk boltann og fór þaðan uppá topp Cesc Fábregas byrjaði hins vegar frammi sem dæmigerður framherji en dró sig svo niður á miðjuna. Þá má benda á myndband þar sem Gary Neville, knattspyrnuspekingur og fyrrum varnarmaður Manchester United, fer yfir leik Börsunga og tekur fyrir þennan 1-3 sigur liðsins.

Spænska stórveldið er óumdeilanleg fyrirmynd þessa skemmtilega leikkerfis og það hefur smitað út frá sér. Nýliðar Swansea hafa undanfarna mánuði tekið spilið til fyrirmyndar enda teflir Brendan Rodgers, stjóri liðsins, fram mjög lágvöxnum miðjumönnum með góða boltatækni og frábæra sendingagetu. Spilamennskan vakti athygli þegar liðið sótti Liverpool heim á Anfield og náði markalausu jafntefli. Þar komu helst við sögu miðjumennirnir Leon Britton og Mark Gower.

Britton hafði fram að leiknum verið með allt að 100% sendingagetu alla leiktíðina og hélt sama dampi í þessum leik. Hann var til að mynda með betri sendingaprósentu (93,3%) heldur en Xavi hjá Barcelona (93%) og John Terry (91,6%) hjá Chelsea fyrr á tímabilinu. Annar leikmaður Swansea sem vakti talsverða athygli, Mark Gower, var á þessum tíma sá leikmaður sem hafði skapað flest marktækifæri af öllum leikmönnum í toppdeildum í Evrópu.

Brendan Rodgers aðhyllist stefnu tiki-taka og hafði orð á því fyrir nokkrum vikum að leikmenn væru þreyttari í höfðinu heldur en öðrum stöðum líkamans þar sem að þeir beittu hugaraflinu mikið á æfingum og útsjónarsemin er lykilatriði. Þeir hafa sýnt árangur tiki-taka með því að leggja lið á borð við Arsenal og Manchester City á heimavelli, auk þess hafa þeir stækkað aðdáendahóp sinn ört með þessari skemmtilegu spilamennsku.

Þýska stórveldið Bayern Munchen er sagt nota „þýsku útgáfuna“ af tiki-taka þar sem að Arjen Robben, Franck Ribéry og Bastian Schweinsteiger eru potturinn og pannan í spili liðsins. David Alaba er svo nýttur svipað og Dani Alves hjá Barcelona. Hann er bakvörður en spilar mikið upp allan kantinn og nýtir hraðann í skyndisóknum. En helsti munurinn á Bæjurum og Börsungum með tilliti til tiki-taka er að Bæjarar nota mikið langar sendingar upp völlinn og þar kemur framherjinn Mario Gómez sterkur inní liðið en hann er öflugur í að klára færi með skalla, taka boltann niður og koma honum í spil.

Þrátt fyrir styrkleika tiki-taka með snöggum, sendingagóðum og lágvöxnum leikmönnum að þá er sá galli á gjöf Njarðar að ef mótherjarnir hafa pakkað í vörn og eru hærri í loftinu - þá er ekkert plan B (Plan B = varaáætlun), nema liðið eigi hávaxinn framherja sem getur skallað. Börsungar afsöluðu sér tækifæri á plani B með sölunni á Zlatan Ibrahimovic.

Spennandi verður að sjá á næstu leiktíð hvort að Tito Vilanova, verðandi aðalstjóri Barcelona, muni koma með breytingu á leikstíl Barcelona liðsins með sínum áherslum. Einnig verður forvitnilegt að fylgjast með spænska landsliðinu á EM í Póllandi og Úkraínu og hvernig hin landsliðin bregðast við tiki-taka spilinu. Síðan verður það mikil áskorun fyrir Brendan Rodgers stjóra Swansea að halda í sína leikmenn eftir öfluga leiktíð Walesverjana í efstu deild. Munu möguleg kaup á Gylfa Sigurðssyni frá Hoffenheim og möguleg styrking á leikmannahópnum spila sitt hlutverk í að liðið geti haldið áfram að spila sinn fótbolta og þróað leikstíl sinn á árangursríkari hátt?

Heimildir:
http://en.wikipedia.org/wiki/Tiki-taka
http://www.guardian.co.uk/football/
http://www.guardian.co.uk/football/2011/mar/06/barcelona-pep-guardiola?INTCMP=SRCH

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner