Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. maí 2012 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Sky Sports 
Enginn hefur haft samband við Villas-Boas
Mynd: Getty Images
Andre Villas-Boas er einn af þeim sem eru taldir líklegir til að taka við Liverpool eftir að Kenny Dalglish var rekinn í gær.

Umboðsmaður Portúgalans segir hinsvegar að enginn hafi sett sig í samband við þá til að ræða við hann.

,,Villas-Boas fylgist með fótbolta, en það hefur enginn opinberleg tilboð borist til hans ennþá," sagði Carlos Goncalves, umboðsmaður þjálfarans.

,,Ef áhugavert verkefni stendur til boða þá myndi hann að sjálfsögðu skoða málið vel," bætti hann við.

Hinn 34 ára gamli Villas-Boas var sagt upp störfum hjá Chelsea í febrúar eftir slakt gengi liðsins. Hann hefur síðan þá verið orðaður við stjórastöðuna hjá Roma, auk Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner