Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 02. júní 2012 16:13
Birgir H. Stefánsson
Ejub Purisevic: Ég fór í leikinn í dag til að vinna
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
“Mér finnst við spila vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. En við fengum á okkur fyrsta markið beint úr aukaspyrnu og svo náum við að koma til baka og skora mark. Svo í byrjun seinni hálfleiks, mér finnst þetta bara barnalegt að fá á okkur svona mark,“ sagði Ejub nokkuð ósáttur eftir fyrsta tap sumarsins í 1. deild.

Lestu um leikinn: Þór 2 -  1 Víkingur Ó.

Það að byrja hálfleikinn reyndist Víkingum erfitt í þessum leik. Voru heppnir að sleppa með það að fá ekki á sig mark strax í upphafi fyrri hálfleiks og fá svo á sig mark strax í upphafi seinni hálfleiksins. Ejub er væntanlega ekki sáttur með svona byrjun?
„Ég er hjartanlega sammála. Ég fékk stundum þá tilfinningu að þeir báru of mikla virðingu og höfðu ekki alveg nægilega mikla trú.“

“Við höfum aldrei sett þau markmið að fara upp, ég skil ekki alveg hvað fólk er að tala um þetta. Ef við fáum tækifærið þá munum við reyna en það er alls ekki markmiðið. Mig langar að fara inn í leiki til að eiga góðann leik og getum notið þess að spila fótbolta. Ég fór í leikinn í dag til að vinna.“

Viðtalið í heild við Ejub má sjá í heild sinni í sjónvarpinu fyrir ofan.

Athugasemdir
banner
banner
banner