Man Utd gæti gert tilboð í Hjulmand - Tottenham ætlar að fá Eze - Fulham sýnir Höjlund áhuga
Nik notaði enskt máltæki - „Sagan er bara sagan"
Ætla ekki tómhent heim fjórða árið í röð - „Það er ansi erfitt"
FH aldrei verið í þessum sporum áður - „Vonandi verður Nik í stuði"
Donni skýtur á Útlendingastofnun: Fásinna og sorglegt að þetta strandi á ríkisstofnun
Óli Kristjáns: Með verri frammistöðum hjá Þróttaraliðinu í ár
Viktor Karl: Komum ferskir inn í seinni en það var eiginlega bara of seint
Dóri Árna: Við hefðum þurft að vera betri
Fyrirliðinn róar taugar stuðningsmanna - „Byrjunin frekar en toppurinn"
Alli Jói: Skilst að við hefðum átt að falla, enda í neðsta sæti og ekki vinna leik
Siggi Höskulds: Fannst við stúta þeim í 80 mínútur
Halli Hróðmars: Það var ákveðið andleysi
Haraldur Freyr: Sigurinn hefði getað endað stærri
Matti Guðmunds: Jordyn Rhodes komin í toppform og með sjálfstraust
Úlfa Dís: Prófa alltaf að skjóta þegar ég er með pláss
Jóhann Birnir: Þýðir ekkert fyrir okkur að horfa á töfluna
Venni: Við erum ekki það litlir að við þorum ekki að horfa á toppinn
Jordyn Rhodes: Fyrsta þrennan á ferlinum
Kom af bekknum og varð hetja Þróttara - „Erfitt fyrir Venna að velja"
Gunnar Heiðar: Við erum bara að fókusa á það sem við erum að gera
„Finnst í þessum undanförnum leikjum það vera auðveldara fyrir andstæðinginn að skora heldur en okkur"
   mið 06. júní 2012 23:30
Arnar Daði Arnarsson
Bjössi Hreiðars.: Strákarnir eiga hrós skilið
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson aðstoðarþjálfari Hauka lék ekki með liðinu gegn Fram í Borgunar-bikarkeppninni í kvöld vegna meiðsla. Hann var virkilega stoltur af strákunum sem spiluðu og fannst Haukaliðið síst lakari aðilinn á köflum.

Lestu um leikinn: Fram 5 -  4 Haukar

,,Fyrst við héldum þetta út og fórum í vítakeppni þá er auðvitað ömurlegt að detta út í henni en það auðvitað getur alltaf gerst að það fari svo," sagði Bjössi sem eins og fyrr segir var ánægður með margt í leiknum hjá Haukaliðinu,

,,Liðið var mjög öflugt, holningin var mjög góð, menn lögðu sig alla fram og skyldu allt eftir á vellinum, þannig að mannskapurinn var að standa sig mjög vel og þeir eiga hrós skilið. Mér fannst við vera síst lakari aðilinn hér í kvöld."

Eins og fyrr segir var Sigurbjörn ekki með í kvöld vegna meiðsla, eins og margir aðrir leikmenn Hauka þessa stundina, en hann hefði auðvitað viljað spila þennan leik og jafnvel tekið víti í vítaspyrnukeppnni, þ.e.a.s. ef hann hefði haldið út í 120 mínútur,

,,Ef maður hafði hangið inn á í 120 mínútur og haldið út þá hefði maður að sjálfsögðu boðið sig fram og það er auðvitað grautfúlt að vera spila hérna á Laugardalsvellinum og missa af leiknum en svona er þetta," sagði Sigurbjörn Örn, eða Bjössi Hreiðars. eins og hann er jú oftast kallaður.

Viðtalið í heild sinni við Sigurbjörn er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner