Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 19. júní 2012 23:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Laurent Blanc svartsýnn fyrir leikinn gegn Spánverjum
Laurent Blanc, þjálfari Frakklands, var hundfúll með frammistöðu liðsins í kvöld sem beið lægri hlut fyrir Svíþjóð í lokaumferð D-riðils á EM.

Svíar fóru með 2-0 sigur af hólmi en það kom Frökkum þó ekki að sök því liðið endaði í öðru sæti riðilsins og komst því í 8-liða úrslit.

Þar munu Frakkar mæta Spánverjum um næstu helgi og er Blanc ekki bjartsýnn fyrir leikinn eftir frammistöðuna í kvöld.

,,Það þarf bjartsýni til að halda að við getum unnið Spán, það er erfitt að ímynda sér núna að við getum það,“ sagði Blanc.

,,Við verðum að gera betur á laugardaginn. Við vildum enda í efstir í riðlinum en höfðum ekki getuna í það, svo við verðum að sætta okkur við það.“
Slapp
banner
banner