1.deild kvenna: HK/Víkingur fór illa með Völsung
Það var nóg um að vera í fyrstu deild kvenna um helgina, en leikið var í báðum riðlum þar sem HK/Víkingur sigraði Völsung nokkuð örugglega.
HK/Víkingur vann Völsung með fimm mörkum gegn einu. Karen Sturludóttir og Hugrún María Friðiksdóttir gerðu tvö mörk og þá skoraði Elma Lára Auðunsdóttir eitt mark. Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir skoraði mark Húsavíkurliðsins.
Í sama riðli vann BÍ/Bolungarvík lið Keflavíkur með þremur mörkum gegn einu. Talita Pereira skoraði þá þrennu fyrir heimaliðið, en Dagmar Þráinsdóttir gerði mark Keflvíkinga. Á föstudag vann þá Tindastóll lið Grindavíkur með einu marki gegn engu.
Staðan í B-riðlinum er því þannig. Fram situr á toppnum með 18 stig eftir sex leiki, en liðið hefur sigrað alla sína leiki. HK/Víkingur er á eftir þeim með þrettán stig í öðru sætinu og í því þriðja situr Keflavík með átta stig.
BÍ/Bolungarvík og Tindastóll eru í fjórða og fimmta sætinu með sex stig og í því sjötta situr lið Völsungs með fjögur stig. Grindavík er þá í sjöunda sæti með þrjú stig og á botninum er Álftanes með 0 stig.
Í A-riðlinum fór fram einn leikur í gær. Sindri vann þá Hauka með tveimur mörkum gegn engu, en þar skoruðu þær Valdís Ósk Sigurðardóttir og María Birkisdóttir mörk Sindra. Fjölnir og Þróttur R. gerðu þá 1-1 jafntefli á föstudag.
Staðan þar er þannig. Fjölnir á toppnum með ellefu stig. Sindri í öðru sæti með tíu stig og þá eru Höttur og ÍA í þriðja og fjórða sætinu með átta stig. Þróttur úr Reykjavík og Haukar eru í fimmta og sjötta sæti með fimm stig og ÍR í sjöunda með fjögur stig. Í neðsta sæti er svo Fjarðabyggð/Leiknir með þrjú stig.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar