Knattspyrnufélag Breiðholts, KB, er eina 3. deildarliðið sem er eftir í Borgunarbikarnum. Liðið mætir Pepsi-deildarliði Selfoss á útivelli í kvöld klukkan 19:15.
Andri Stefánsson, fyrirliði og stjórnarmaður KB, gaf sér tíma til að svara spurningum.
Andri Stefánsson, fyrirliði og stjórnarmaður KB, gaf sér tíma til að svara spurningum.
Hvernig er stemningin hjá KB þessa dagana?
Hún er mjög góð núna og fer stöðugt batnandi með fleiri sigrum í deildinni og svo er árangurinn í bikarnum ekkert til að vera súr yfir.
Er mikil spenna fyrir bikarleikinn gegn Selfyssingum?
Já heldur betur, þetta er langstærsti leikur ársins fyrir okkur. Ekki oft sem við fáum séns á að spila við úrvalsdeildarklúbb. Meira að segja markmaðurinn okkar mætti á æfingu í gær en það segir okkar að þetta sé ekki hefðbundinn leikur í deildinni.
Eru allir klárir í slaginn?
Það eru allir klárir í svona leik og enginn á meiðslalistanum. Menn hafa staðið á haus að breyta utanlandsferðum og fá frí í vinnu til að ná leiknum.
Hvernig verður leikurinn lagður upp af hálfu KB?
Þeir eru með mun betri leikmenn og í miklu miklu betra formi þannig að ég held að það sé augljóst að við munum eftir fremsta megni reyna að verja markið okkar en þó sækja þegar við fáum færi á því.
Er liðið í miklu samstarfi við Leikni?
Samstarf Leiknis og KB hefur í gegnum tíðina verið mikið en er með minna móti í ár. Höfum haft mun minna aðgengi að strákum í 2. flokki Leiknis en við hefðum viljað og höfum haft undanfarin ár. Margir leikmenn meistaraflokks Leiknis í dag stigu sín fyrstu skref í meistaraflokksbolta með KB.
Ertu ánægður með byrjun tímabilsins?
Alls ekki. Töpuðum fyrstu þremur leikjum okkar í deildinni og til viðbótar við það að við unnum varla leik í allan vetur. Sem skýrist af því að við misstum marga leikmenn eftir seinasta sumar sem annað hvort lögðu skóna á hilluna eða fóru í stærri lið. Í kjölfarið var áhuginn fyrir starfinu í vetur lítill og æfingasókn og árangur eftir því. Nú hins vegar er áhugi manna allur að aukast og hefur góður árangur í bikarnum mikið að segja með það.
Hvert var markmið sumarsins?
Það var bara eitt markmið hjá KB og það er að leika ekki í 4. deild næsta sumar og til þess þurfum við að spila seinni hluta mótsins betur en við höfum spilað fyrri hlutann.
Hvaða lið telur þú að verði að berjast um að komast upp úr þriðju deildinni í sumar?
Hef reyndar bara séð liðin sem við höfum spilað við en ég á von á því að Augnablik séu sterkir og svo virðast Huginn og Magni vera með fín lið ef maður skoðar stöðutöflunar.
Lýstu liðinu í þremur orðum:
Óstundvísir, steiktir en samt hressir.
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um:
Við erum með Manna úr Nonna og Manna í okkar liði. Sem eru frábærir þættir sem Ríkissjónvarpið ætti að sýna á hverju ári.
Eitthvað að lokum?
Mætið á völlinn í kvöld. KB verður í glænýjum og glæsilegum búningum.
Eldra efni í ,,Hvað er að frétta?"



