Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. júní 2012 23:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Heimild: Bild 
Mario Mandzukic á leið til FC Bayern
Mynd: Getty Images
Mario Mandzukic, leikmaður Wolfsburg og króatíska landsliðsins, mun ganga til liðs við Bayern München á morgun samkvæmt þýska blaðinu Bild.

Mandzukic vakti mikla athygli á EM í sumar með Króatíu þegar hann skoraði þrjú mörk í riðlakeppninni sem hjálpaði liðinu þó ekki að komast í útsláttarkeppnina.

Talið er að samkomulag hafi náðst milli Wolfsburg og Bayern og mun Mandzukic skrifa undir þriggja ára samning við þýska stórliðið.

Bayern mun borga 13 milljónir evra fyrir þennan 26 ára sóknarmann sem hefur skorað 20 mörk fyrir Wolfsburg síðan hann kom frá Dinamo Zagreb árið 2010.
Athugasemdir
banner
banner
banner