,,Þetta var mjög sætur sigur. Allir sigrar í bikarnum eru sætir," sagði Ólafur Þórðarson þjálfari Víkings eftir 2-1 sigur á sínum gömlu félögum Fylki í Borgunarbikarnum í kvöld.
,,Ég vil þakka Fylkismönnum kærlega fyrir leikinn. Ég vona að þeir haldi áfram og rífi sig upp."
,,Ég vil þakka Fylkismönnum kærlega fyrir leikinn. Ég vona að þeir haldi áfram og rífi sig upp."
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 1 Fylkir
Ólafur tók út leikbann í leiknum í kvöld og þurfti því að fylgjast með leiknum af áhorfendasvæðinu.
,,Ég stóð í horninu með Ómari Torfasyni og Þorgrími Þráinssyni. Það var mikil reynsla komin saman þar og viska. Við fórum yfir allt saman, allt frá barnauppeldi upp á elliheimisaldurinn," sagði Ólafur sem lét lítið í sér heyra miðað við oft áður.
,,Ég öskraði sáralítið. Ég kallaði einu sinni á dómara. Ég er nánast klár á því að markið þeirra var rangstaða og þá lét ég aðeins í mér heyra."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















