Miroslav Klose, sóknarmaður Þýskalands, setti met í gærkvöldi gegn Ítalíu í undanúrslitum EM. Ítalir sendu Þjóðverja heim með 2-1 sigri og mæta Spánverjum í úrslitaleiknum á sunnudaginn
Klose kom inná sem varamaður í háfleik fyrir Mario Gomez en þetta var hans fimmti undanúrslitaleikur á stórmóti, eitthvað sem enginn annar hefur áður afrekað.
Eftir tapið í gær hefur hann þrisvar verið í tapliðinu í undanúrslitum en tvisvar í sigurliðinu.
Klose hefur skorað 64 mörk fyrir Þýskaland í 121 leikjum, þar af 17 mörk á stórmóti, en þessi 34 ára sóknarmaður er aðeins fimm mörkum frá því að slá markamet Þýskalands en Gerd Müller skoraði 68 mörk fyrir þjóðina á sínum tíma.
Klose segist hvergi nærri hættur og ætlar að vera með á HM eftir tvö ár.





