„Þeir sáu hvað ég var massaður og öfunduðu mig!" sagði Mario Balotelli í gríni eftir leikinn í gær. Balotelli er þjóðhetja á Ítalíu eftir 2-1 sigurinn á Þýskalandi í undanúrslitum EM.
Hann skoraði bæði mörk Ítalíu og fagnaði öðru þeirra með því að rífa sig úr að ofan.
Hann skoraði bæði mörk Ítalíu og fagnaði öðru þeirra með því að rífa sig úr að ofan.
„Eftir leikinn fór ég til mömmu, það var besta tilfinningin. Ég sagði henni að mörkin væru fyrir hana. Mamma er ekki ung lengur og getur ekki ferðast langt. Ég varð að gleðja hana því hún kom alla þessa leið," sagði Balotelli.
Á myndinni má sjá Balotelli fagna með móður sinni en hún ættleiddi hann þegar hann var þriggja ára gamall.



