Rashford orðaður við Bayern - Trafford í markið hjá Newcastle - Trossard á förum frá meisturunum
   fös 29. júní 2012 08:30
Elvar Geir Magnússon
Steven Howard: Framkoman við Beckham til skammar
Pistill
Steven Howard, íþróttastjóri enska götublaðsins The Sun, og stórstjarnan David Beckham eru ekki vinir. Þeir hafa oft eldað grátt silfur saman en þrátt fyrir það tekur Howard nú upp hanskann fyrir Beckham og finnst út úr korti að leikmaðurinn sé ekki valinn í Ólympíulandslið Bretlands.

Í gær varð það ljóst að Beckham mun ekki keppa fyrir breska liðið og skrifaði Howard beittan pistil vegna málsins. Hér að neðan má sjá íslenska þýðingu á stórum hluta hans.



Illgjarnt, úr takti við almenningsálit og rangt.

David Beckham er ekki í Ólympíuhópi Stuart Pearce. Þetta er ákvörðun sem er stórslys af hendi Ólympíusambandsins.

Ég hef aldrei verið ein af klappstýrum Beckham - langt í frá - en þessi ákvörðun er blaut tuska framan í þjóðina. Hvað hefði getað haft jákvæðari áhrif á keppnina en að Beckham gengi fyrir breska liðinu gegn Senegal á Old Trafford 26. júlí? Aðeins sólarhring fyrir opnunarhátíðina.

Þegar allt kemur til alls var það hlutverk Beckham sem spilaði stórt hlutverk í því að London fékk að halda leikana. Það er enginn vafi á því að alheimsfrægð Beckham hjálpaði umsókn Bretlands.

Í sannleika sagt á Beckham miklu meira skilið að vera í hópnum sem einn af eldri leikmönnum frekar en Micah Richards. Richards er í uppáhaldi hjá Pearce en hann sýndi sína hollustu til þjóðarinnar í síðasta mánuði þegar hann HAFNAÐI því að vera til taks fyrir landsliðshóp Englands á Evrópumótinu.

Honum var alveg sama og fór í frí til Barbados.

Þetta er leikmaður sem að mati Pearce á meira skilið að vera í hópnum en leikmaður sem var alltaf til í að fljúga frá Los Angeles til að verma varamannabekkinn fyrir enska landsliðið.

Beckham hefur alltaf viljað vaða eld og brennistein fyrir England. Líka eftir ógeðfelld hróp sem hann, eiginkona hans og sonur urðu fyrir frá fullum enskum stuðningsmönnum á Evrópumótinu árið 2000.

Þetta er ekki í fyrsta sinn á þessu ári sem Pearce horfir framhjá leikmanni sem má flokka sem sameign þjóðarinnar. Þegar hann stýrði enska landsliðinu gegn Hollandi í febrúar hlaut Steven Gerrard ekki náð fyrir augum hans og hann gerði Scott Parker að fyrirliða.

Pearce er augljóslega maður sem líkar það að hafa völd. Framkoman við Beckham er til skammar og hann var notaður. Notaður til að hjálpa til við að fá Ólympíuleikana til Bretlands.

Að mínu mati er Pearce maður sem hefur verið ofmetinn innan enska knattspyrnusambandsins eftir að hafa gengið illa sem knattspyrnustjóri hjá bæði Nottingham Forest og Manchester City,

Þrátt fyrir að hafa verið rekinn með skömm frá City ákvað enska sambandið að ráða hann sem þjálfara U21-landsliðsins. Þar á eftir tók hann við A-landsliðinu til bráðabirgða eftir að Fabio Capello hætti. Þar kom þörf hans til að sýna það hver væri við stjórnvölinn bersýnilega í ljós.

Nánast allir, fyrir utan þá sem hata Beckham, eru sammála um það að illa hefur verið komið fram við fyrrverandi fyrirliða Englands.
Slapp
banner
banner