Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 29. júní 2012 17:00
Elvar Geir Magnússon
Rússland og Spánn fá sektir
Knattspyrnusambönd Spánar og Rússlands hafa verið sektuð um samtals 50 þúsund evrur fyrir kynþáttaníð stuðningsmanna á Evrópumótinu.

Agadómstóll UEFA fann út að báðar þjóðir voru sekar um óviðunandi hegðun hjá stuðningsmönnum.

Rússneskir stuðningsmenn beindu apahljóðum að tékkneska bakverðinum Theodor Gebre Selassie en hróp Spánverjana beindust að Mario Balotelli.

Þessi refsing Rússa gerir það þó ekki að verkum að landsliðið fái sex refsistig í undankeppninni fyrir EM 2016 eins og hætta er á.
Slapp
banner
banner
banner