UNICEF á Íslandi gefur fólki kost á að vinna áritaða treyju frá leikmönnum Fótboltafélagsins Barcelona með því að senda SMS með orðinu „unicef“ í númerið 1900.
Dregið verður eftir úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta milli Spánar og Ítalíu í kvöld. Hvert smáskilaboð kostar 1.500 krónur og rennur allur ágóði til UNICEF.
Hægt er að auka vinningslíkur með því að senda fleiri en ein skilaboð. Leikurinn fór vel af stað í vikunni og hefur nú þegar yfir hálf milljón króna safnast í pottinn.
Fimm leikmenn árituðu treyjuna; Gerard Pique, Victor Valdés, Xavi Hernandez, Carlos Pyol og David Villa. Eins og mörgum er kunnugt eru Pique, Valdés og Hernandez í landsliði Spánar á EM. Tveir síðastnefndu eru ekki með sökum meiðsla en voru í landsliðinu þegar Spánverjar urðu heimsmeistarar árið 2012 og Evrópumeistarar árið 2008.
Til mikils að vinna!
Verðmæti treyjunnar hleypur á tugþúsundum (treyjan sjálf kostar 15.600 kr. að undanskildum áritunum fimm leikmanna FCB). Fótboltafélagið hefur nú gefið nokkrar treyjur til landsnefnda UNICEF og er aðeins ein í boði í hverju landi. Það er því til mikils að vinna!
Heppinn vinningshafi verður dreginn út eftir úrslitaleik Spánar og Ítalíu í kvöld og tilkynnt verður um hann í EM kvöldinu á RÚV.
Farsælt samstarf UNICEF og Fótboltafélags Barselóna
Treyja Fótboltafélags Barselóna hefur borið merki UNICEF síðan árið 2006 og var það í fyrsta skipti í 110 ára sögu félagsins sem vörumerki var sett á treyjuna. Félagið styrkir verkefni UNICEF víðs vegar um heiminn um 1,5 milljónir evra á ári síðastliðin sjö ár en það jafngildir yfir 1,6 milljarði króna. Einn besti sóknarmaður heims, Leo Messi, hefur auk þess spilað hlutverk velgjörðarsendiherra UNICEF frá árinu 2010 og m.a. heimsótt verkefni UNICEF eftir jarðskjálftana á Haítí.
Fylgist einnig með á www.unicef.is og www.facebook.com/unicefisland.



