Heimild: BBC
Cesc Fabregas, leikmaður spænska landsliðsins, býst við hörkuúrslitaleik gegn Ítölum á EM en liðin mætast á sunnuagskvöld.
,,Þeir hafa marga möguleika frammi. Þeir hafa sterka leikmenn eins og Balotelli og brögðótta leikmenn eins og Cassano," sagði Fabregas.
,,Á miðjunni hafa þeir leikmenn eins og [Claudio] Marchisio og [Andrea] Pirlo sem hefur átt frábært mót. Þetta verður erfiður leikur."
Ítalía og Spánn gerðu 1-1 jafntefli í riðlakeppninni en Fabregas vill meina að það sé verðskuldað að þessi lið eigist við í úrslitaleik.
,,Sigurvegararnir verðskuldað að verða meistarar. Ég tel að þetta séu þau lið sem hafa sýnt mestan stöðugleika á mótinu."



