Fanndís Friðriks: Maður er í þessu fyrir þetta móment
Fanndís Friðriksdóttir, fyrirliði Breiðabliks, var allt í öllu í sóknarleik liðsins og skoraði þrjú mörk í bikarleiknum í gær.
Fanndís, sem er Eyjamaður var hress og sátt eftir leikinn.
,,Ég er bara nokkuð góð en maður er samt alltaf smá ÍBV-ari í sér."
Blikarnir voru með eins marks forystu í hálfleik og svo skiptust liðin á að skora. ÍBV að jafna og Blikarnir að komast yfir. Á endanum var staðan 3-3 eftir venjulegan leiktíma. Mikil baráttuandi var í báðum liðum en um leið og Blikarnir náðu yfirhöndinni náðu leikmenn ÍBV alltaf að jafna.
,,Við féllum allt of aftarlega á völlinn en héldum áfram að sækja nema þegar Shaneka Gordon kom inn á. Hún átti allt sóknarlega við duttum frá henna oft á köflum."
Í seinni hálfleik framlengingarinnar gerðust dálítið sérstakir atburðir en í miðjum leiknum fór risa flugeldasýning í gang og eftir hana tók listflugvél við og sýndi listir sínar í loftinu og þetta skapaði mikinn hávaða á vellinum á meðan leikurinn var í fullu fjöri.
,,Þetta náði aðeins að stríða einbeitingunni. Sérstaklega flugvélin. Maður fór bara að horfa á hana dansa í loftinu og erfitt var að eiga samskitpi við samherja sína inn á vellinum."
Fanndís var fyrsti leikmaðurinn til að stíga á vítapunktinn en hún skoraði örugglega fram hjá Khym Ramsay í markinu.
,,Ég heyrði hróp og köll úr stúkunni og hugsaði með mér ég skal skora, ég ætla að skora."
Það var svo í bráðabananum sem að úrslitin réðust með markvörslu frá Birnu Kristjánsdóttur.
,,Tilfinningin þegar hún varði var ólýsanleg. Ég hljóp bara og fagnaði. Þetta var sjúklega sætt. Maður er í þessu fyrir þetta moment."

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:45