Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 03. júlí 2012 14:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Fjórir leikmenn franska landsliðsins fá refsingu
Fjórir leikmenn franska landsliðsins eiga von á refsingu fyrir hegðun sína á EM.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Samir Nasri, Jeremy Menez, Hatem Ben Arfa og Yann M'Vila.

Allir leikmenn í franska hópnum áttu að fá 80 þúsund evra bónusgreðislu fyrir þátttöku sína á mótinu en greiðslur þessara leikmanna hafa nú verið frystar.

Nasri reif kjaft við blaðamann á meðan Menez reifst við fyrirliðann Hugo Lloris.

Ben Arfa reifst við þjálfarann Laurent Blanc og M'Vila neitaði að taka í hendina á Blanc eftir að hafa verið tekinn af velli gegn Spánverjum í 8-liða úrslitum.
Slapp
banner
banner
banner