Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 03. júlí 2012 15:45
Fótbolti.net
Uppgjör 9. umferðar: Zoran Miljkovic með KR-derhúfu
Zoran Miljkovic á vellinum.
Zoran Miljkovic á vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Guðjónsson á við meiðsli að stríða og var hvíldur gegn Grindavík.
Bjarni Guðjónsson á við meiðsli að stríða og var hvíldur gegn Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Níundu umferð Pepsi-deildarinnar lauk í gær með þremur leikjum. Eins og venjan er þá gerum við umferðina upp í uppgjörinu þar sem við skoðum það sem upp úr stendur.

Leikur umferðarinnar: ÍA 2 - 7 FH
Það voru nokkrir stórskemmtilegir leikir í þessari umferð en athyglisverðustu úrslitin verða að teljast þau á Skaganum. Heimamenn í ÍA réðu engan veginn við sóknarþunga FH-inga sem höfðu þriggja marka forystu í hálfleik.

Mark umferðarinnar: Kennie Chopart
Daninn Kennie Chopart er gæðaleikmaður og hann sýndi svo sannarlega gæði þegar hann kláraði færi sitt í Garðabænum í gær með glæsilegri vippu. Fékk færið eftir frábæra sendingu frá Halldóri Orra.

Óánægja umferðarinnar: Fram-spjallið
Miðað við spjallsvæðið á heimasíðu Fram er óánægja stuðningsmanna að aukast og þráðurinn „Þorvald burt!" hefur verið settur inn. „Af hverju í andsk. er Fram allt í einu orðið íhaldsamasta og umburðarlyndasta félag á Íslandi í þjálfaratryggðarmálum," skrifar einn.

Hetja umferðarinnar: Jón Daði Böðvarsson
Tryggði Selfyssingum stig undir lokin gegn Keflavík. Hlutirnir hafa alls ekki fallið með Selfyssingum í sumar en þetta jöfnunarmark gæti orðið einhver vendipunktur...

Martraðavika umferðarinnar: Valur
Valsmenn töpuðu illa fyrir 1. deildarliði Þróttar í bikarnum og fóru svo sneipuför til Vestmannaeyja.

Hrægammur umferðarinnar: Zoran Miljkovic
Zoran Miljkovic er mættur til landsins. Eftir að hafa bjargað Leikni frá falli úr 1. deildinni á ævintýralegan hátt í fyrra finnur Miljkovic lykt af því að starf gæti losnað í íslenska boltanum bráðlega. Hann var með KR-derhúfu á leik KR og Grindavíkur.

IKEA-ferð umferðarinnar: Paul McShane
Paul McShane er á meiðslalistanum og lék ekki með Grindavík gegn KR. Meðan á leik stóð fóru í gang sögur á Twitter um að McShane hafi valið það að skoða sig um í IKEA frekar en að mæta á völlinn og fylgjast með félögunum steinliggja.

Ekki lið umferðarinnar:
Sigmar Ingi (Breiðablik)
Einar Logi (ÍA) - Matthías Örn (Grindavík) - Kári Ársæls (ÍA) - Ray Anthony Jónsson (Grindavík)
Kristinn Ingi (Fram) - Mark Doninger (ÍA) - Sam Hewson (Fram)
Jón Vilhelm (ÍA) - Magnús Björgvins (Grindavík) - Óli Baldur (Grindavík)

Dómari umferðarinnar: Gunnar Jarl Jónsson
Jarlinn dæmdi leik KR og Grindavíkur gríðarvel. Garðar Örn fær annað sætið fyrir dómgæsluna í Stjarnan - Fram.

Ummæli umferðarinnar: Sigurður Óli
„Þú sérð ekkert fyrir skegginu þínu," sagði Sigurður Óli Þórleifsson aðstoðardómari við Magnús Gylfason, þjálfar ÍBV, sem var að mótmæla dómi.
Slapp
banner
banner