Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 03. júlí 2012 15:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Heimasíða Man Utd 
Sir Alex: Erum í viðræðum um að fá fleiri leikmenn
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að félagið sé að vinna í að fá einn til tvo leikmenn í viðbót í sumar.

Þetta sagði hann í viðtali við MUTV, sjónvarpsstöð félagsins.

United hefur þegar fengið Japanann Shinji Kagawa frá Borussia Dortmund, auk þess sem ungstirnið Nick Powell gekk í raðir United fyrir skömmu frá Crewe.

,,Já, það er mögulegt. Við erum að vinna að einum eða tveimur hlutum en það er ekkert sem ég get sagt ykkur ef ég á að vera hreinskilinn," sagði Ferguson aðspurður um hvort þreifingar væru í gangi.

,,Við erum alltaf að reyna að klára vinnu okkar í lok tímabilsins. Við eyddum góðum tíma í að klára Shinji og við gengum frá málunum við Nick Powell fyrir umspilið hjá Crewe. Það var gott fyrir okkur þar sem hann var frábær í úrslitunum á Wembley."

Margir leikmenn hafa verið orðaðir við félagið í fjölmiðlum undanfarnar vikur, en United heldur ávallt þeirri stefnu að halda viðræðum um leikmannaviðskipti leyndum til hins ítrasta.

Samningamál eiga þó til að dragast á langin en Ferguson segir það hinsvegar eðlilegt þegar tvö félög eiga í viðræðum.

,,Þegar samningar nást ekki strax og maður er í viðræðum við félag í langan tíma, þá er ekki hægt að búast við að maður smelli saman fingrunum og viðskiptin ganga í gegn," bætti Skotinn við.
Slapp
banner