Rashford orðaður við Bayern - Trafford í markið hjá Newcastle - Trossard á förum frá meisturunum
banner
   þri 03. júlí 2012 17:43
Magnús Már Einarsson
Úrskurður aganefndar: Sex úr Pepsi-deildinni í bann
Brynjar Gauti er á leið í leikbann.
Brynjar Gauti er á leið í leikbann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Börkur er kominn með fjögur gul og á leið í bann.
Ásgeir Börkur er kominn með fjögur gul og á leið í bann.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Aga og úrskurðarnefnd KSÍ kom saman í dag líkt og vanalega á þriðjudögum. Sex leikmenn í Pepsi-deild karla voru úrskurðaðir í bann og fjórir í Pepsi-deild kvenna.

Allir leikmennirnir sem voru dæmdir í bann í Pepsi-deild karla eru á leið í bann vegna fjölda gulra spjalda og því tekur bann þeirra ekki gildi fyrr en á föstudag. Þeir geta því spilað í 10. umferð Pepsi-deildarinnar á fimmtudag.

Hér að neðan má sjá hvaða leikmenn eru að fara í bann en athugið að einhverjir leikmenn gætu verið búnir að taka sína refsingu út.

Pepsi-deild karla:
Ingvar Þór Kale (Breiðablik)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir)
George Baldock (ÍBV)
Brynjar Gauti Guðjónsson (ÍBV)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Kjartan Henry Finnbogason (KR)

Pepsi-deild kvenna:
Ragna Björg Einarsdóttir (Breiðablik)
Elínborg Ingvarsdóttir (ÍBV) - 2 leikir
Íris Sæmundsdóttir (Aðstoðarþjálfari ÍBV)
Vesna Smiljkovic (ÍBV)

1. deild karla:
Gunnlaugur Jónasson (BÍ/Bolungarvík)
Sigurgeir Sveinn Gíslason (BÍ/Bolungarvík)
Bergsveinn Ólafsson (Fjölnir)
Andri Björn Sigurðsson (ÍR)
Willum Þór Þórsson (Þjálfari Leiknis R.)
Helgi Óttarr Hafsteinsson (Víkingur Ó.)

2. deild karla:
Birgir Freyr Ragnarsson (Afturelding)
John Andrews (Afturelding)
Arnar Geir Halldórsson (Dalvík/Reynir)
Frans Veigar Garðarsson (Grótta)
Ágúst Örlaugur Magnússon (Hamar)
Lárus Orri Sigurðsson (Þjálfari KF)
Elimar Hauksson (KFR)

3. deild karla:
Nuno Miguel Jardim Lopes (Afríka)
Ingólfur Örn Ingólfsson (Álftanes)
Árni Páll Hafþórsson (Árborg)
Helgi Már Jónsson (Einherji)
Sigurður Donys Sigurðsson (Einherji)
Hilmar Ástþórsson (ÍH)
Almar Daði Jónsson (Leiknir F.)
Aron Ellert Þorsteinsson (SR)
Davíð Guðlaugsson (Víðir)
Árni Þór Finnsson (Ýmir)
Gunnar Marteinsson (Ægir) - 2 leikir
Slapp
banner