Vefsíðan Off The Post er þessa dagana að skoða leikmannakaup sem stærstu félög Englands vilja kannski gleyma sem fyrst.
Hér lítum við á misheppnuð leikmannakaup Arsenal.
Hér lítum við á misheppnuð leikmannakaup Arsenal.
10. Jermaine Pennant
Þó Pennant hafi þróast út í þokkalegan úrvalsdeildarleikmann var tími hans hjá Arsenal ein stór vandræði. Arsenal borgaði 2 milljónir punda fyrir hann þegar hann var 15 ára en var svo látinn fara á frjálsri sölu.
9. Per Mertesacker
Þjóðverjinn hefur ekki verið ömurlegur en þegar Arsenal borgaði 10 milljónir punda fyrir þennan varnarmann bjuggust stuðningsmenn við meiru. Átti góða leiki síðasta tímabil en var oft glæpsamlega hægur og svifaseinn.
8. Mikael Silvestre
Virtist hafa verið sendur frá Manchester United til að skemma fyrir Arsenal. Frakkinn var kominn yfir sitt besta og fór á frjálsri sölu til Werder Bremen.
7. Kaba Diawara
Væri mun ofar á listanum ef Wenger hefði ekki náð á einhvern ótrúlegan hátt að græða á sóknarmanninum með því að selja hann á 3 milljónir punda til Marseille. Hann spilaði 15 leiki fyrir Arsenal en skoraði ekkert mark.
6. Chris Kiwomya
Kom til Arsenal frá Ipswich 1995 og var ein síðustu kaup George Graham. Kostaði 1,25 milljón punda, var í fjögur tímabil og skoraði aðeins þrjú deildarmörk. Fór svo til QPR á frjálsri sölu 1998.
5. Igor Stepanovs
Keyptur frá Lettlandi og byrjaði vel. Eftir að illa var farið með þennan miðvörð í leik gegn Manchester United virtist hann missa allt sjálfstraust. Lék aðeins 17 leiki á þremur tímabilum áður en hann fór í belgísku 2. deildina.
4. Gervinho
Frægari fyrir hárið sitt en árangur hjá félaginu. Kostaði mikið. Þó Marouane Chamakh hafi verið lélegur þá kostaði hann allavega ekkert á meðan Arsenal borgaði 10 milljónir punda fyrir Gervinho.
3. Sebastien Squillaci
Kostaði Arsenal 4 milljónir punda en virðist á engan hátt vera í úrvalsdeildarklassa. Mistakagjarn, hægur og virðist skorta einbeitingu. Ótrúlegt að hann hafi leikið yfir 20 landsleiki fyrir Frakkland.
2. Richard Wright
Maðurinn sem átti að verða landsliðsmarkvörður Englendinga. Var keyptur til Arsenal frá Ipswich. David Seaman meiddist, Wright fékk tækifærið en missti stöðuna til Stuart Taylor. Eftir aðeins eitt tímabil hjá Arsenal var Wright seldur til Everton en er nú, 34 ára, hjá Preston í C-deildinni.
1. Francis Jeffers
Jeffers er líklega ástæða þess að Wenger kýs að kaupa erlenda leikmenn. Jeffers var keyptur fyrir 8 milljónir punda frá Everton 2001 þegar hann var tvítugur. Átti ekkert í samkeppni við Wiltord, Henry og Bergkamp. Hvert mark hans kostaði Arsenal 2 milljónir punda og á endanum fór hann til Charlton. Eftir það floppaði hann hjá Rangers, Blackburn, Ipswich, Sheffield Wednesday, Newcastle Jets og Motherwell. Sorgarsaga.
Næst munum við skoða misheppnuð leikmannakaup Chelsea.



