Áfram höldum við að skoða verstu leikmannakaupin hjá stærstu félögum Englands. Um er að ræða þýðingu af vefsíðunni Off The Post og er bara til gamans, ekki er um ítarlega rannsókn að ræða.
Í gær skoðuðum við Arsenal en nú er komið að grönnum þeirra í Chelsea.
Í gær skoðuðum við Arsenal en nú er komið að grönnum þeirra í Chelsea.
10. Robert Fleck
Skoskur sóknarmaður sem enn er talað um meðal stuðningsmanna Chelsea. Var keyptur 1992 og skoraði fjögur mörk í 48 leikjum áður en hann var lánaður til Bristol City.
9. Juan Veron
Það er kannski að vissu leyti hægt að réttlæta kaup Manchester United á Veron því vissulega var hann frábær hjá Lazio. En af einhverri óskiljanlegri ástæðu ákvað Chelsea að borga 15 milljónir punda fyrir leikmanninn eftir að hann floppaði á Old Trafford. Veron kostaði Chelsea yfir 2 milljónir punda á hvern spilaðan leik fyrir liðið í úrvalsdeildinni.
8. Yuri Zhirkov
Var spilaður út úr stöðu hjá Chelsea. Er vinstri bakvörður en var látinn leika á miðju og á kanti. Það var ekki að virka.
7. Gabriele Ambrosetti
Varð aldrei fastamaður í þau fjögur ár sem hann var hjá félaginu. Gianluca Vialli kallaði hann hinn ítalska Giggs. Ummæli sem hægt er að hlæja að í dag.
6. Pierluigi Casiraghi
Kannski ósanngjarnt gagnvart Ítalanum því ferli hans lauk vegna meiðsla aðeins tíu leikjum eftir félagaskiptin til Chelsea. 5,4 milljónir punda fyrir þessa tíu leiki.
5. Paul Furlong
Keyptur á metfé þegar hann var keyptur frá Watford sumarið 1994 fyrir 2,3 milljónir punda. Stuttu síðar mættu Gullit og Vialli og Furlong var geymdur á tréverkinu. Eftir tvö ár hjá Chelsea fór hann til Birmingham.
4. Winston Bogarde
Hollendingur sem fékk fjögurra ára samning hjá Chelsea og var hjá félaginu út þann samning. Spilaði níu leiki og æfði með unglingaliðinu seinni tvö tímabilin.
3. Andriy Shevchenko
Keyptur til Chelsea frá AC Milan á 30 milljónir punda. Var keyptur af eigandanum Roman Abramovich þrátt fyrir að hafa ekki verið á óskalista knattspyrnustjórans Jose Mourinho. Shevchenko skoraði níu deildarmörk á tveimur tímabilum, fór á lán aftur til AC Milan áður en hann hélt heim til Úkraínu og gekk til liðs við Dynamo Kiev
2. Chris Sutton
Þegar Gianluca Vialli var knattspyrnustjóri eyddi hann 10 milljónum punda í Sutton. 28 leikir í úrvalsdeildinni, eitt mark. Eftir aðeins eitt tímabil var hann seldur til Celtic. Það bjargar þessu aðeins að Chelsea tókst að fá 6 milljónir punda fyrir söluna.
1. Fernando Torres
Vissulega gerði hann fína hluti undir lok síðasta tímabils. En það má ekki gleyma því að Torres er dýrasti leikmaður í sögu enska boltans og hefur enn sem komið er aðeins gert sjö úrvalsdeildamörk fyrir Chelsea. Þegar þú hugsar út í það þá er ekki hægt að neita því að það er mjög lélegt.
Sjá einnig:
Tíu verstu leikmannakaup Arsenal


