Vefsíðan Off The Post hefur verið með þema í gangi hjá sér þar sem skoðuð eru misheppnuð leikmannakaup hjá helstu liðum Englands. Nú er komið að því að skoða Liverpool en við ítrekum að um val Off The Post er að ræða en ekki Fótbolta.net.
10. Andy Carroll
Hann hefur enn tíma til að koma sér af þessum lista. Var keyptur fyrir ansi mikinn pening frá norðurhluta Englands en hann þarf að fara að sýna miklu meira í búningi Liverpool en hann hefur gert til þessa.
9. Jordan Henderson
Hann hefur enn tíma til að koma sér af þessum lista. Var keyptur fyrir ansi mikinn pening norðurhluta England en hann þarf að fara að sýna miklu meira í búningi Liverpool en hann hefur gert til þessa.
8. Anthony Le Tallec
Keyptur af Gerard Houllier frá Le Havre á 3 milljónir punda 2001. Skoraði ekki deildarmark á sjö árum sínum á Anfield. Var lánaður í fimm og hálft ár af þessum sjö. Var einfaldlega ekki nægilega góður.
7. El-Hadji Diouf
Liverpool borgaði Lens 11 milljónir punda fyrir Diouf eftir að hann sló í gegn á HM 2002. Skoraði aðeins sjö deildarmörk í 80 leikjum áður en hann var seldur til Bolton. Þar kom hann sér í fréttirnar fyrri að hrækja á stuðningsmenn Celtic og fleira.
6. Robbie Keane
Hélt með Liverpool þegar hann var yngri og spurning hvort hann hafi ekki höndlað tilfinningarnar sem fylgja því að spila fyrir liðið? Var seldur aftur til Tottenham eftir sjö mánuði hjá liðinu.
5. Stewart Downing
Er svona ofar en Henderson og Carroll á listanum fyrir þær sakir að hann skilaði ekki neinu deildarmarki og 0 stoðsendingum á fyrsta tímabili sínu. Spilaði ekki mínútu með Englandi á EM og verðmæti hans hefur hrapaða.
4. Sean Dundee
Gríðarlega hraður. En hraðinn einn kemur manni ekki alla lið. Hjá Karlsruhe skoraði Dundee 35 deildarmörk. Var hjá Liverpool í eitt tímabil, spilaði þrisvar og skoraði ekki mark.
3. Bernard Diomede
Keyptur á 3 milljónir punda árið 2000 af Gerard Houllier. Fékk það hlutverk að vera hress á bekknum og spilaði aðeins tvo leiki fyrir félagið.
2. Bruno Cheyrou
Gerard Houllier borgaði 4,5 milljónir punda fyrir Cheyrou 2002 og kallaði hann samstundis nýjan Zidane. Stuðningsmenn komust að því að eina sem var líkt með Cheyrou og Zidane var að þeir eru báðir franskir.
1. Alberto Aquilani
Liverpool borgaði 17 milljónir punda fyrir Aquilani þegar Xabi Alonso var seldur til Real Madrid. Þremur árum síðar er Aquilani enn leikmaður Liverpool en hefur verið lánaður til Juventus og AC Milan.
Sjá einnig:
Tíu verstu leikmannakaup Chelsea
Tíu verstu leikmannakaup Arsenal




