Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 07. júlí 2012 11:30
Elvar Geir Magnússon
Tíu verstu leikmannakaup Newcastle
Í dag ætlum við að skoða tíu leikmannakaup sem Newcastle vill helst gleyma. Það var vefsíðan Off The Post sem setti upp þennan lista og er hann þýddur þaðan.

10. Christian Bassedas
Var það lélegur á Englandi að hann lagði skóna á hilluna eftir dvöl sína þar þrítugur að aldri. Vakti athygli sem aftasti varnarmaður hjá Velez Sarsfield í Argentínu og var keyptur til Newcatle fyrir 3,5 milljónir punda. Spilaði bara 24 leiki á þremur árum og fékk nóg.

9. Alan Smith
Eftir að Sir Alex Ferguson mistókst að gera Smith að djúpum miðjumanni keypti Newcastle leikmanninn á 6 milljónir punda. Hann skoraði ekki mark á fimm tímabilum hjá Newcastle.

8. Michael Owen
Þrátt fyrir að Owen hafi eitthvað náð að skora fyrir Newcastle þá kostaði hann 16,8 milljónir punda og þau kaup voru mistök. Oflaunaður og sífellt meiddur.

7. Alain Goma
Ekki alslæmur varnarmaður en var keyptur á 4,7 milljónir punda og lenti upp á kant við þjálfara liðsins. Fann sig ekki í Newcastle og fór fram á sölu.

6. Hugo Viana
Ekki slakur leikmaður en fann sig alls ekki í enska boltanum eftir að hafa verið keyptur á 8,5 milljónir punda. Var hjá Newcastle í þrjú tímabil áður en var lánaður í burtu það síðasta.

5. Jean Alain Boumsong
Graeme Souness gerði slæm kaup sem knattspyrnustjóri Newcastle.Boumsong var keyptur á 8 milljónir punda frá Rangers í Glasgow aðeins hálfu ári eftir að hafa verið fáanlegur á frjálsri sölu. Einstaklingsmistök á færibandi frá þessum franska varnarmanni,

4. Carl Cort
Keyptur á 7 milljónir punda frá Wimbledon. Var óheppinn með meiðsli en þau náðu ekki að fela gæðaleysi leikmannsins. 22 leikir á fjórum tímabilum og svo seldur til Wolves.

3. Elena Marcelino
Þótti spennandi biti þegar hann var hjá Mallorca en sá stimpill hvarf um leið og hann mætti á St James’ Park. Newcastle borgaði 5,8 milljónir punda fyrri leikmanninn til að reyna að fylla upp í gatasigtið sem vörn liðsins var. Verður helst minnst fyrir að vera frá í tvo mánuði vegna meiðsla á fingri.

2. Xisco
5,7 milljónir kostaði Xisco. Flott nafn en dapur leikmaður. Peningasóun. Er enn á mála hjá félaginu en hefur verið lánaður til Spánar síðustu tvö tímabil.

1. Albert Luque
Náði að skora í grannaslag gegn Sunderland en samt þola stuðningsmenn Newcastle hann ekki! Var keyptur á 9,5 milljónir punda 2005 og var meiddur allan sinn tíma hjá félaginu. 9,5 milljónir punda fyrir eitt deildarmark!

Sjá einnig:
Tíu verstu leikmannakaup Liverpool
Tíu verstu leikmannakaup Chelsea
Tíu verstu leikmannakaup Arsenal
Slapp
banner