Við höldum uppteknum hætti frá síðustu viku og skoðum áfram verstu kaup helstu félaga ensku úrvalsdeildarinnar. Vefsíðan Off The Post tók þetta saman og er það lauslega þýtt til gamans.
Í dag skoðum við Manchester United.
Í dag skoðum við Manchester United.
10. Erik Nevland
Seldur til Manchester United nítján ára gamall, kostaði 1,5 milljón punda. Var hjá United í þrjú ár en lék aðeins einn deildarleik, sem varamaður gegn Southampton. Fór á frjálsri sölu aftur til Viking í Noregi 2000.
9. Alan Smith
Kom til United eftir að hafa staðið sig vel sem sóknarmaður hjá Leeds. Hann skoraði þó lítið hjá United og ákvað Ferguson að reyna að gera djúpan miðjumann úr honum. Hann var heldur ekki nægilega góður í því hlutverki. Eftir fótbrot voru dagar hans svo taldir á Old Trafford.
8. Dimitar Berbatov
Líklega umdeilt val þar sem hann var markakóngur á tímabili sem United vann deildina. En þegar á heildina er litið bjóst fólk við mikið meiru frá Berbatov eftir að hafa verið keyptur á 31 milljón punda. Kostaði meira en Rooney og Nistelrooy. Af 46 deildarmörkum hans hafa 26 komið gegn liðum sem eru núna í Championship og gegn Wigan.
7. Juan Sebastian Veron
Væri ofar á listanum ef United hefði ekki náð að plata Chelsea til að kaupa hann af sér á 15 milljónir punda. Þegar Veron kom til United á 28,1 milljón punda var það metfé. Á tveimur tímabilum skoraði hann bara sjö deildarmörk sem sókndjarfur miðjumaður.
6. Eric Djemba-Djemba
Var keyptur til að fylla skarð Roy Keane. Var alls ekki nægilega góður í það hlutverk og var seldur til Aston Villa. Hann var það lélegur hjá Villa að hann kemst einnig á lista yfir verstu kaupin hjá því ágæta félagi.
5. Diego Forlan
Var keyptur a 6,9 milljónir punda en það tók hann 18 leiki að skora fyrsta markið sitt. Blómstraði eftir að hann yfirgaf United. Hefur síðan unnið Evrópudeildina, Suður-Ameríkubikarinn, gullskó Evrópu tvívegis og var valinn besti leikmaður HM 2010!
4. Owen Hargreaves
Meiðslahrjáði miðjumaðurinn var keyptur á 17 milljónir punda. Spilaði aðeins 27 deildarleiki á fjórum tímabilum. Nú er útlit fyrir að ferli hans gæti verið lokið.
3. Kleberson
Stóð sig vel með Brasilíu á HM 2002 svo United opnaði veskið og borgaði 5,9 milljónir punda fyrir þjónustu hans. Átti að koma í staðinn fyrir Veron sem einnig floppaði. Var seldur fyrir mun lægri upphæð 2005 og er talinn vera ein stærstu mistök í stjóratíð Sir Alex Ferguson há Manchester United.
2. Massimo Taibi
Ítalskur markvörður sem var duglegur við að gefa mörk. Enn þann dag í dag er talað um að „gera Taibi" þegar maður missir boltann gegnum klofið. Taibi kostaði 4,5 milljónir punda og lék fjóra leiki. Var svo seldur til Reggina.
1. Bebe
Verstu kaup í sögu úrvalsdeildarinnar? Ein furðulegustu félagaskipti sögunnar komu þegar Ferguson ákvað að hlusta á Carlos Queiroz og kaupa Bebe frá Estrela í Portúgal. Leikmaðurinn getur afskaplega lítið og hefur verið meira í hlutverki aðhlátursefnis en fótboltamanns. Er núna í varaliði United eftir að hafa verið lánaður til Besiktas í fyrra... þar sem hann náði ekki að skora.
Sjá einnig:
Tíu verstu leikmannakaup Newcastle
Tíu verstu leikmannakaup Liverpool
Tíu verstu leikmannakaup Chelsea
Tíu verstu leikmannakaup Arsenal




