,,Við vorum svolítið óheppnir síðast og við þurfum að verjast betur en í síðasta leik gegn þeim," segir Steven Lennon framherji Fram en liðið mætir Stjörnunni í annað skipti á viku þegar liðin eigast við í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld. Framarar töpuðu 4-2 þegar liðin mættust í Pepsi-deildinni fyrir viku en Lennon var á skotskónum þar.
,,Við vorum nokkuð hættulegir fram á við og ég og Bjössi (Sveinbjörn Jónasson) erum að ná vel að saman. Við höfum skorað í síðustu leikjum og vonandi getum við haldið því áfram í kvöld."
Sveinbjörn Jónasson hefur komið öflugur inn í lið Fram í síðustu leikjum og Lennon kann vel við að spila með honum frammi.
,,Þetta er það sem ég hef viljað. Hafa mann frammi sem ég get spilað þríhyrningsspil við. Bjössi hefur hjálpað mér mikið því ég vil frekar vera fyrir aftan framherjann en að spila einn uppi. Ég held að ég geti skorað fleiri mörk þegar ég er með framherja með mér."
,,Bjössi er fullkominn fyrir mig því að hann er leikmaður sem getur haldið boltanum og aðrir leikmenn eins og ég geta tekið seinni boltana. Seinustu leikir okkar hafa verið bestu leikir okkar á tímabilinu og vonandi getum við fylgt því eftir með því fara að vinna leiki."
Undanúrslitin fara fram um næstu mánaðarmót og Lennon vonast til að Fram komist þangað.
,,Þróttur og Grindavík fóru áfram í gær svo við eigum góðan möguleika á að komast í úrslitaleikinn ef við vinnum í kvöld. Vonandi verðum við klárir í slaginn og náum góðum úrslitum," sagði Lennon að lokum.


