Heimild: Sky
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segir að AC Milan hafi ekki lagt fram tilboð um að fá framherjann Andy Carroll á láni.
Carroll hefur verið orðaður við AC Milan að undanförnu en þessi 23 ára gamli leikmaður hefur ekki ennþá náð að slá í gegn á Anfield síðan hann kom til Liverpool frá Newcastle á 35 milljónir punda í fyrra.
,,Ég hef ekki heyrt neitt frá þeim," sagði Rodgers aðspurður út í áhuga AC Milan á Carroll.
,,Andy er góður leikmaður. Hann verður alltaf orðaður við önnur félög, hvort sem hann væri hér eða annars staðar."
,,Andy er í sumarfríi en ég hef talað við hann og hann veit nákvæmlega hvar hann stendur. Hann er mjög góður ungur leikmaður og hann verður orðaður við önnur félög því hann er svo öflugur leikmaður."




