Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 09. júlí 2012 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Borgunarbikarinn: Stjarnan í undanúrslit
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Stjarnan 2 - 1 Fram
1-0 Garðar Jóhannsson ('6)
1-1 Sam Tillen ('45)
2-1 Garðar Jóhannsson ('72)

Stjarnan var að leggja Fram af velli í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins rétt í þessu þar sem Garðar Jóhannsson skoraði bæði mörk Stjörnunnar með skalla.

Strax á sjöttu mínútu skoraði Garðar eftir fyrirgjöf frá Jóhanni Laxdal, en Sam Tillen jafnaði leikinn rétt fyrir hálfleikslok beint úr aukaspyrnu.

Garðar skoraði aftur á 72. mínútu og tryggði heimamönnum þannig sigurinn, en Framarar fengu færi til að jafna sem þeir nýttu sér ekki. Besta færi Framara var þá þegar Sveinbjörn Jónasson skaut boltanum yfir einn gegn marki í síðari hálfleik.

Í uppbótartíma skoruðu Framarar en markið dæmt af vegna rangstöðu.

Frekari umfjöllun kemur á eftir.
Slapp
banner
banner
banner