Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 16. júlí 2012 21:26
Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin á leið í raðir KR
Gary Martin leikur síðari hluta Íslandsmótsins með KR ef allt fer eins og horfir.
Gary Martin leikur síðari hluta Íslandsmótsins með KR ef allt fer eins og horfir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin leikmaður ÍA lék líklega lokaleik sinn fyrir ÍA í kvöld þegar liðið vann 4-0 sigur á Selfossi á heimavelli.

Hann staðfesti við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld að hann gangi líklega í raðir KR á næstunni en málin gætu skýrst strax í kvöld.

Þórður Þórðarson þjálfari ÍA sagði við Fótbolta.net eftir leikinn að Martin væri á förum frá félaginu og að ýmsar ástæður lægu að baki sem hann vildi ekki tjá sig um í fjölmiðlum. Hann sagði mögulegt að ÍA fái leikmann frá KR í hans stað.

Martin lagði upp tvö mörk í leiknum í kvöld og átti mjög góðan dag.

Viðtölin við Þórð og Gary Martin koma hér á Fótbolta.net innan skamms.
Slapp