Clint Dempsey á leið til Liverpool?
Kíkjum á helstu slúðurmolana úr enska boltanum á þessum fína miðvikudagsmorgni.
Jose Mourinho vill fá Micah Richard varnarmann Manchester City til Real Madrid á 20 milljónir punda. (Daily Star)
Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham vonast til að hafa betur gegn Chelsea í baráttunni um Hulk framherja Porto. (Daily Mail)
Oscar, miðjumaður Internacional í Brasilíu, er á leið í læknisskoðun hjá Chelsea áður en hann gengur í raðir félagsins á 25 milljónir punda. (Daily Mail)
Dimitar Berbatov framherji Manchester United gæti farið til AC Milan eða Juventus. (Talksport)
Sau Paulo hefur hafnað 29,8 milljóna punda tilboði frá Manchester United í miðjumanninn Lucas Moura. (Daily Mirror)
Rafael van der Vaart segist vilja vera áfram hjá Tottenham og vinna undir stjórn Andre Villas-Boas. (The Sun)
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hefur sagt umboðsmönnum Andy Carroll að leikmaðurinn geti farið frá félaginu. Talið er að Newcastle sé að undirbúa 16 milljóna punda tilboð. (The Sun)
Arsenal ætlar að gefa Robin van Persie þau skilaboð að hann fái ekki að fara frá félaginu áður en samningur hans rennur út eftir eitt ár. (The Times)
Gianfranco Zola, nýráðinn stjóri Watford, vill fá framherjana Filippo Inzaghi og Alessandro Del Piero til félagsins. (Daily Mirror)
Barcelona gæti reynt að fá Daniel Agger varnarmann Liverpool eftir að hafa hætt við að kaupa Javi Martinez frá Athletic Bilbao. (Daily Mail)
Bafetimbi Gomis framherji Lyon ætlar að hafna tilboði frá Tottenham. (Talksport)
Fulham hefur hafið viðræður um að fá Romelu Lukaku á láni frá Chelsea. (Daily Mirror)
Kolo Toure, varnarmaður Manchester City, er á óskalista Al Hilal í Sádi-Arabíu. Toure vill fá 50 þúsund punda í vikulaun eftir skatta, hús, tvo bíla og fyrirliðabandið hjá Al Hilal en óvíst er hvort félagið gangi að kröfum hans. (Daily Mirror)
Lokomotiv Moskva hefur boðið átta milljónir punda í Emmanuel Adebayor framherja Manchester City en hann virðist þó vera á leið til Tottenham. (Daily Telegraph)
Liverpool er að kaupa Clint Dempsey frá Fulham á tíu milljónir punda. (Daily Mail)
Scott Dann varnarmaður Blackburn gæti farið til Ajax á láni. Reading og Southampton hafa einnig áhuga á Dann en þau geta ekki borgað þær sex milljónir punda sem Blackburn vill fá fyrir leikmanninn. (Daily Mail)
Peter Odemwingie, framherji WBA, gæti verið á förum frá félaginu eftir rifrildi við stjórann Steve Clarke. (Talksport)
Arsenal hefur ekki hafið samningaviðræður við Theo Walcott þrátt fyrir að samningur hans renni út næsta sumar. (Guardian)
Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
09:00


