banner
   mán 06. ágúst 2012 15:14
Elvar Geir Magnússon
Liverpool sagt ætla að selja Daniel Agger
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum Sky Sports íhugar Liverpool að selja Daniel Agger til að fá aukinn pening til leikmannakaupa.

Agger hefur verið orðaður við Manchester City og er líklegt að félagið geri nýtt tilboð í leikmanninn.

Barcelona er einnig sagt hafa áhuga á þessum 27 ára varnarmanni. Framtíð hans hefur verið til umræðu eftir að hann var ekki í leikmannahópnum í fyrri leik Liverpool gegn FC Gomel í undankeppni Evrópudeildarinnar.

Brendan Rodgers vill fá um 20 milljónir punda fyrir Agger sem hægt verði að nota til að styrkja liðið í öðrum stöðum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner