Ítalskir fjölmiðlar segja að Antonio Conte, þjálfari Juventus, gæti sagt af sér ef hann fær tíu mánaða bann í réttarhöldunum vegna nýja Ítalíuskandalsins.
Conte er sakaður um að hafa leynt upplýsingum um hagræðingu úrslita þegar han var hjá Siena 2010-11 og gæti mest fengið 15 mánaða bann.
Conte er sakaður um að hafa leynt upplýsingum um hagræðingu úrslita þegar han var hjá Siena 2010-11 og gæti mest fengið 15 mánaða bann.
Bannið gildir aðeins um leiki og mætti Conte því stýra Juventus á æfingum og öllum undirbúningi. Í sjálfum leikjunum þyrfti hann hinsvegar að vera uppi í stúku og mætti ekki fara inn í búningsklefann.
Samkvæmt La Repubblica er Conte tilbúinn að skila inn uppsagnarbréfi ef hann verður dæmdur sekur. Hann hefur þó fullan stuðning Juventus í málinu.
Massimo Carrera, unglingaþjálfari Juventus, stýrði liðinu í æfingaleik gegn Malaga um helgina og er búist við því að hann verði augu og rödd Conte á hliðarlínunni ef hann fer í bann.

