Halldór Kristinn: Okkar lélegasti leikur var gegn Blikum
Miðvörðurinn Halldór Kristinn Halldórsson tekur út leikbann í kvöld þegar Valur mætir Breiðabliki í Pepsi-deild karla.
„Það er engin pressa og maður getur falið sig upp í stúku. Það er samt í raun mikið erfiðara að vera áhorfandi og geta lítið annað gert en styðja sitt lið til að hjálpa eitthvað til," segir Halldór.
Breiðablik vann 1-0 sigur þegar liðin mættust í Kópavoginum í fyrri umferðinni.
„Blikar eru á mikilli uppleið á meðan við höfum verið mjög óstöðugir. Við erum ekki bestu vinir „tipparana". Þetta hefur verið rosalega mikið upp og niður og liðið enn ekki gert neitt jafntefli."
„Sennilega var okkar lélegasti leikur á tímabilinu gegn Blikum í fyrri umferð. Það var ekkert í gangi og allt steindautt. Ég held að það þurfi ekki mikið til að koma liðinu í gírinn fyrir þennan leik."
Rúnar á mikið hrós skilið
Valur vann mikilvægan 1-0 útisigur gegn Selfossi í síðustu umferð eftir að hafa gengið mjög illa í leikjunum á undan. Sá sigur var því gríðarlega mikilvægur.
„Það var pressa á okkur að vinna þann leik og það tókst í mjög fjörugum leik. Bæði lið sóttu og færi á báða bóga. Við náðum upp mjög góðu spili, uppspilið var gott og við héldum boltanum vel. Vonandi höldum við áfram að byggja upp á það."
Rúnar Már Sigurjónsson hefur verið besti leikmaður Vals í sumar og fengið mikið lof fyrir sína frammistöðu. Halldór segir hann eiga það allt skilið.
„Rúnar hefur verið mjög góður á þessari leiktíð og á mikið hrós skilið. Hann hefur verið algjör lykilmaður í okkar spili og verið hreinlega frábær," segir Halldór Kristinn Halldórsson.
Leikur Vals og Breiðabliks á Vodafone-vellinum í kvöld hefst klukkan 19:15.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar