Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 09. ágúst 2012 17:00
Magnús Már Einarsson
Bestur í 1. deild: Vissi að Grænland væri nálægt Íslandi
Bestur í 11. umferð - Chukwudi Chijindu (Þór)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
,,Við vissum að þetta væri mikilvægur leikur. Við þurftum þrjú stig til að halda áfram að klifra upp töfluna og við náðum því þrátt fyrir að dómarinn hafi gefið þeim tvær vítaspyrnur," sagði Chukwudi ,,Chuck" Chijindu við Fótbolta.net í dag en hann er leikmaður 11. umferðar í fyrstu deild karla.

Chuck var sprækur í fremstu víglínu Þórs gegn Hetti í gær en hann skoraði mark og lagði upp annað. Þórsarar fóru með 2-1 sigur af hólmi en Srdjan Rajkovic markvörður liðsins varði vítaspyrnu frá Högna Helgasyni á síðustu andartökum leiksins.

,,Fyrir vítaspyrnuna sagði ég við markvörðinn að hann myndi verja og sem betur fer náði hann að koma hendinni í boltann og verja frábærlega."

Chuck kom til Þórs í lok síðasta mánaðar áður en félagaskiptaglugginn lokaði.

,,Umboðsmaður minn bauð mér þetta tækifæri. Allir fótboltamenn vilja bæta sig og ég taldi að þetta væri gott skref, að koma hingað og sýna hvað ég get. Þetta hefur gengið vel hingað til og vonandi heldur það þannig áfram," sagði Chuck sem vissi lítið um Ísland áður en hann kom til landsins.

,,Ég vissi ekki mjög mikið í hreinskilni sagt. Það eina sem ég hafði heyrt var að Ísland og Grænland væru nálægt hvort öðru. Landið hefur komið mér á óvart, þetta er mjög gott. Allir hafa verið mjög almennilegir og ég er ánægður og hef ekki yfir neinu að kvarta."

Áður en Chuck kom til Íslands lék hann meðal annars með Chivas í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

,,Það var frábær reynsla. Ég spilaði þar í þrjú og hálft ár og eignaðist góða vini. Ég lærði hvernig á að vera atvinnumaður, hugsa um líkamann og undirbúa sig andlega fyrir erfiða leiki. Ég tel að þessi reynsla hafi hjálpað mér að bæta mig sem leikmaður."

,,Ég spilaði gegn David Beckham, Landon Donovan og félögum í LA Galaxy. Ég mætti Thierry Henry og Rafael Marquez í New York og þetta eru mjög stór félög. Ég lærði af þessum leikmönnum með því að horfa á þá spila."


Chuck mun leika með Þór út tímablið en hann segir óvíst hvort hann verði áfram hjá liðinu næsta sumar.

,,Það veltur á félaginu og framtíð minni eftir tímabilið. Við munum ræða það þá en núna einbeiti ég mér bara að því að leggja mig fram með liðinu og vonandi náum við að komast upp um deild," sagði Chuck að lokum.

Sjá einnig:
Leikmaður 13. umferðar - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Leikmaður 12. umferðar - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Leikmaður 9. umferðar - Dominic Furness (Tindastóll)
Leikmaður 8. umferðar - Halldór Smári Sigurðarson (Víkingur R.)
Leikmaður 7. umferðar - Darren Lough (KA)
Leikmaður 6. umferðar - Björn Pálsson (Víkingur Ó.)
Leikmaður 5. umferðar - Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
Leikmaður 4. umferðar - Nigel Quashie (ÍR)
Leikmaður 3. umferðar - Ásgeir Aron Ásgeirsson (Fjölni)
Leikmaður 2. umferðar - Robin Strömberg (Þór)
Leikmaður 1. umferðar - Birkir Pálsson (Höttur)
Slapp
banner
banner
banner