,,Fyrri hálfleikurinn var einn af þeim betri hjá okkur í sumar en þetta var jafnara í þeim síðari og meiri barátta," sagði Halldór Hilmisson við Fótbolta.net í dag en hann er leikmaður 14. umferðar í fyrstu deild karla eftir frammistöðu sína í 2-1 sigrinum á Leikni í gær.
Halldór skoraði magnað mark í leiknum þegar hann lék varnarmenn Leiknis grátt. Hægt er að sja myndband af markinu á á vef SportTv.
,,Þetta gekk upp. Ég var alltaf að hugsa um að gefa hann en maður hélt áfram. Þetta hlýtur að vera eitt af flottari mörkunum á ferlinum, maður hefur ekki skorað þau mörg þannig að það hlýtur að vera."
Þróttarar unnu ekki leik fyrr en í áttundu umferð en liðið er nú komið upp í sjötta sæti deildarinnar eftir sigurinn í gær.
,,Þetta voru furðulegir leikir í byrjun. Við vorum að spila ágætlega en gefa mörg klaufamörk. Ég hafði trú á því að við myndum fara að hala inn stig og maður hafði engar sérstakar áhyggjur. Þetta er líka jöfn deild svo það er stutt í botninn og stutt í annað eða þriðja sætið."
Halldór er orðinn 35 ára gamall og hann segist vera farinn að íhuga að leggja skóna á hilluna.
,,Ég er orðinn það gamall að maður gæti farið að hætta þessu. Þegar maður er orðinn frekar gamall í þessu þá er maður alltaf á leiðinni að hætta. Maður sér hvernig líkaminn verður. Það er erfitt að hætta þessu, maður mætir alltaf aftur og aftur," sagði Halldór sem íhugaði sterklega að hætta eftir síðasta tímabil.
,,Ég var að spá í því en síðan lét ég til leiðast. Ég byrjaði ekki að æfa fyrr en í janúar eða febrúar en það var ágætt að hvíla sig og koma sterkur inn."
Skórnir eru ekki komnir á hilluna en ekki er sömu sögu að segja af svitabandi sem hann lék með á höfðinu í leikjum með Þrótti fyrir mörgum árum.
,,Það fór á hilluna fyrir löngu síðan. Þetta var djókur sem var kominn á endastöð. Ég og Ingvi Sveinsson vorum eitthvað að djóka með þetta og ég mætti með þetta til leiks eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég var lengi kallaður Mark Knopfler en síðan var þetta komið gott," sagði Halldór að lokum.
Sjá einnig:
Leikmaður 13. umferðar - Evan Schwartz (Víkingur R.)
Leikmaður 12. umferðar - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Leikmaður 11. umferðar - Chukwudi Chijindu (Þór)
Leikmaður 9. umferðar - Dominic Furness (Tindastóll)
Leikmaður 8. umferðar - Halldór Smári Sigurðarson (Víkingur R.)
Leikmaður 7. umferðar - Darren Lough (KA)
Leikmaður 6. umferðar - Björn Pálsson (Víkingur Ó.)
Leikmaður 5. umferðar - Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
Leikmaður 4. umferðar - Nigel Quashie (ÍR)
Leikmaður 3. umferðar - Ásgeir Aron Ásgeirsson (Fjölni)
Leikmaður 2. umferðar - Robin Strömberg (Þór)
Leikmaður 1. umferðar - Birkir Pálsson (Höttur)




