Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 16. ágúst 2012 13:30
Magnús Már Einarsson
Bestur í 1. deild: Eitt besta markið á ferlinum
Bestur í 15. umferð - Mark Tubæk (BÍ/Bolungarvík)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Baldur Smári Ólafsson
,,Þetta var góður leikur fyrir okkur og það er alltaf gaman að vera valinn besti leikmaður umferðarinnar," sagði Mark Tubæk leikmaður BÍ/Bolungarvíkur við Fótbolta.net í dag en hann er leikmaður 15. umferðar í fyrstu deild karla eftir frammistöðu sína í 3-1 sigrinum á Hetti um síðustu helgi.

BÍ/Bolungarvík er eftir sigurinn með 19 stig í áttunda sæti, en liðið er fimm stigum frá falli og sjö stigum á undan Hetti sem er á botninum.

,,Við komumst sjö stigum á undan þeim með sigrinum. Ef við hefðum tapað hefði munurinn bara verið eitt stig. Auðvitað var þetta mikilvægur sigur til að komast lengra frá fallsvæðinu."

,,Mér finnst liðið vera of gott til að falla. Ég held að við verðum ekki nálægt fallsvæðinu þegar deildin klárast."


Tubæk skoraði frábært mark með þrumuskoti í stöng og inn eins og sjá má eftir 2 mínútur og 10 sekúndur í þessu myndbandi.

,,Ég hef skorað mörg falleg mörk en þetta var klárlega eitt af þeim besta. Ég hitti boltann vel og það er alltaf gaman að sjá hann fara inn. Þetta var gott mark."

Tubæk kom til BÍ/Bolungarvíkur í júlí á sama tíma og landi hans Alexander Jackson Möller.

,,Ég talaði við vin minn Dennis Nielsen sem spilar með liðinu. Síðan talaði ég við aðila hjá félaginu, við ræddum málin og náðum samkomulagi. Ég vildi prófa eitthvað nýtt fyrir utan Danmörk og þetta var góður tímapunktur í það."

Tubæk bjó áður í Álaborg í Danmörku en Ísafjörður er talsvert minni staður. Tubæk kann ágætlega við sig á Vestfjörðum.

,,Þetta er öðruvísi en ég er vanur í Danmörku. Ég bý með hinum dönsku strákunum í liðinu og við skemmtum okkur saman. Þetta er ágætt þó að þetta sé ekki eins og ég er vanur í stærri borg í Danmörku," sagði Tubæk sem veit ekki hvort hann muni leika áfram með BÍ/Bolungarvík næsta sumar.

,,Ég er að ræða við BÍ/Bolungarvík núna en það hefur verið áhugi hjá öðrum félögum svo ég veit ekki hvar ég mun enda. Núna einbeiti ég mér bara að mínu félagi, við þurfum að ná í stig til að halda okkur uppi."

Sjá einnig:
Leikmaður 14. umferðar - Halldór Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 13. umferðar - Evan Schwartz (Víkingur R.)
Leikmaður 12. umferðar - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Leikmaður 11. umferðar - Chukwudi Chijindu (Þór)
Leikmaður 9. umferðar - Dominic Furness (Tindastóll)
Leikmaður 8. umferðar - Halldór Smári Sigurðarson (Víkingur R.)
Leikmaður 7. umferðar - Darren Lough (KA)
Leikmaður 6. umferðar - Björn Pálsson (Víkingur Ó.)
Leikmaður 5. umferðar - Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
Leikmaður 4. umferðar - Nigel Quashie (ÍR)
Leikmaður 3. umferðar - Ásgeir Aron Ásgeirsson (Fjölni)
Leikmaður 2. umferðar - Robin Strömberg (Þór)
Leikmaður 1. umferðar - Birkir Pálsson (Höttur)
Slapp
banner